Starfsfólk leikskóla og frístundaheimila Reykjavíkur fá eingreiðslu Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2017 12:11 Heildarfjárhæð vegna greiðslu til starfsfólks leikskólanna nemur 27,3 milljónum króna. vísir/vilhelm
Starfsfólk á leikskólum og frístundaheimilum Reykjavíkurborgar munu fá eingreiðslu frá borginni, en aðgerðin er liður í að mæta manneklu og efla mannauð í leikskólum. Borgarráð samþykkti þetta á fundi sínum í gær. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að greiðslan komi til viðbótar eingreiðslu til stjórnenda í leikskólunum sem áður hafði verið samþykkt í ráðinu ásamt öðrum bráðaaðgerðum til að mæta auknu álagi á starfsfólk. Heildarfjárhæð vegna greiðslu til starfsfólks leikskólanna nemur 27,3 milljónum króna. Borgarráð samþykkti sömuleiðis eingreiðslu til starfsfólks frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva til viðbótar við áður samþykktar aðgerðir til að mæta manneklu og efla mannauð í frístundastarfinu. Heildarfjárhæð vegna þessa nemur 11 milljónum króna. Í tilkynningunni segir að eingreiðslur til starfsfólks leikskóla, frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva munu nema 20 þúsund krónur fyrir hvern starfsmann sem var í fullu starfi í september og koma til útborgunar 1. desember næstkomandi. „Kostnaður vegna þeirra aðgerða sem borgarráð hefur nú samþykkt til að mæta manneklu og bæta starfsumhverfi starfsfólks leikskóla nemur í heild allt að 155 m. kr. Starfshópur um nýliðun og bætt starfsumhverfi leikskólakennara kjara- og mannauðsdeild Reykjavíkurborgar hefur aðrar tillögur aðgerðateymis til að bregðast við manneklu til umfjöllunar. Þá hafði borgarráð samþykkt fjárveitingu til að mæta auknu álagi á starfsfólk í frístundastarfinu og efla liðsheild, s.s. með hærri efnis- og rekstrarframlögum, eingreiðslu til stjórnenda og námsleyfi fyrir starfsmenn. Kostnaður vegna þeirra aðgerða er áætlaður í heild um 32,75 m.kr. Öðrum tillögum aðgerðateymis var vísað til starfshóps um nýliðun og bætt starfsumhverfi í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum og hins vegar til kjara- og mannauðsdeilda Reykjavíkurborgar,“ segir í tilkynningunni. Nánar má lesa um málið á vef Reykjavíkurborgar.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira