Vilja auka öryggi á strandveiðum Svavar Hávarðsson skrifar 5. apríl 2017 07:00 Að meðaltali eru strandveiðar stundaðar á 683 bátum árlega. vísir/stefán
Lögð er til grundvallarbreyting á strandveiðikerfinu í lagafrumvarpi sex þingmanna Vinstri grænna. Þar er lögð til breyting sem felur í sér að auka öryggi sjómanna á strandveiðibátum með því að binda veiðarnar við tólf veiðidaga innan hvers mánaðar og svæðis. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, er fyrsti flutningsmaður málsins, en þar segir í greinargerð að sá „ágalli hefur verið á gildandi fyrirkomulagi að veiðarnar hafa verið það sem kallað er „ólympískar“ sem birtist í því að sjómenn hafa keppst um að ná þeim afla sem heimilað er á sem skemmstum tíma og áður en aflaheimildin yrði upp urin. Þetta hefur leitt til þess að stundum hafa menn róið á minni bátum þótt ekki viðraði til þess og fylgir því að sjálfsögðu aukin slysahætta. Með þeirri breytingu sem hér er lögð til ætti að vera dregið mjög úr hvata til „ólympískrar“ sóknar og þar með slysahættu.“ Í stað þessa fyrirkomulags verði heimilt að stunda veiðar í tólf daga í hverjum mánuði. Strandveiðar hafa verið stundaðar frá því í júní 2009. Frá árinu 2010 hafa að meðaltali 682 bátar stundað strandveiðar ár hvert. Frá árinu 2011 hafa strandveiðar skilað rúmum frá 7.000 tonnum til 8.555 tonna árið 2016. Segir í frumvarpinu að frá árinu 2011 hafi þorskafli í strandveiðum því ekki fylgt aukningu heildarafla. Alls 7.968 tonn á tímabilinu vantar þar upp á því árið 2011 var heildarþorskafli 169.600 tonn en rúm 250.000 tonn í fyrra.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira