Yfir fimmtíu samningar gerðir með keðjuábyrgð Svavar Hávarðsson skrifar 29. apríl 2017 07:00 Brot gegn starfsmönnum hafa ítrekað komið upp í verktakastarfsemi hérlendis, en reglunum er ætlað að tryggja að slíkt gerist ekki. vísir/gva
Landsvirkjun gerði rúmlega fimmtíu samninga með ákvæðum um keðjuábyrgð árið 2016, sem byggja á reglum sem fyrirtækið setti sér í lok ágúst síðastliðins. Reglunum er ætlað að tryggja að allir sem vinna fyrir Landsvirkjun á óbeinan hátt, hjá verktökum, undirverktökum eða starfsmannaleigum, njóti réttinda og kjara í samræmi við lög og kjarasamninga. Þetta kom fram í máli Jónasar Þórs Guðmundssonar, stjórnarformanns Landsvirkjunar, á ársfundi fyrirtækisins á miðvikudag. Hann sagði að með þessum nýju reglum sé leitast við að tryggja enn betur réttindi starfsmanna. Hann sagði Landsvirkjun leiða þróun í þessa átt, en keðjuábyrgð þýðir í grunninn að aðalverktaki er gerður ábyrgur fyrir að tryggja kjarasamnings- og lögbundin réttindi allra starfsmanna sem að verkinu koma. Aðrir sem hafa farið sömu leið og Landsvirkjun eru Ríkiskaup og tvö stærstu sveitarfélög landsins; Reykjavíkurborg og Akureyrarbær.Jónas Þór Guðmundsson, stjórnarformaður LandsvirkjunarSamkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun getur fyrirtækið samkvæmt nýjum reglum beitt dagsektum þar til úr er bætt og/eða haldið eftir greiðslum, eins og til dæmis vegna verksamninga. Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, lagði lagafrumvarp fyrir þingið nýlega en það bíður enn þinglegrar meðferðar. Verði það að lögum bindur það endahnútinn á baráttumál sem hefur legið á borði verkalýðs- og fagfélaga auk samtaka atvinnurekenda sem hafa haldið úti baráttu gegn brotum sem í daglegu máli hafa verið kölluð hrakvinna; þegar kjarasamningar, lög og skilyrði um aðbúnað eru virt að vettugi. Í raun er frumvarpið viðbragð við brotum á ákvæðum kjarasamninga og vinnulöggjafar, félagslegum undirboðum og ýmsum tegundum skattsvika sem tengjast verktakastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði, eins og kemur fram í tillögu til þingsályktunar um starfshóp um keðjuábyrgð, frá hendi þingmanna Vinstri grænna frá því á yfirstandandi þingi. Fram hefur komið í fréttum af brotum gegn ákvæðum kjarasamninga og vinnulöggjafar að þau bitna oft á erlendum starfsmönnum verktakafyrirtækja. Talsmenn verkalýðssamtaka benda á að kjör erlendra starfsmanna sem starfa á vegum erlendra undirverktaka að verkefnum hér á landi hafi í ýmsum tilvikum reynst langtum lakari en íslenskir kjarasamningar og reglur um aðbúnað heimila, segir í greinargerð þingsályktunartillögunnar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Fleiri fréttir „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Sjá meira