Sterkari miðbær með léttvíni Benedikt Bóas skrifar 12. desember 2017 14:30 Miðbær Garðabæjar gæti orðið enn skemmtilegri ef bæjarstjórn Garðabæjar fær sínu framgengt.
Steinþór Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Garðabæ, lagði til á síðasta bæjarstjórnarfundi að bæjarstjórnin sammæltist um að senda ÁTVR erindi þar sem hvatt verði til opnunar á sérverslun með létt vín í miðbænum. Gunnar Einarsson bæjarstjóri sagði á sama fundi frá viðræðum við forsvarsmenn ÁTVR um opnun sérverslunar. Steinþór segir að næsta skref sé að senda formlegt bréf og láta bæjarstjórann fylgja því eftir. „Það kom frá ÁTVR að það væri vilji þar til að opna sérverslun, hvort sem er með viskí eða annað. Við vorum auðvitað hálffúl að ÁTVR vildi setja verslunina í Kauptún því við vildum að hún kæmi aftur í miðbæinn,“ segir hann.Steinþór EinarssonKauptún er orðinn sjóðheitur reitur og umferðarþunginn hefur aukist til muna með komu Costco í sumar, en fyrir var þar að finna IKEA, Bónus og Toyota-umboðið svo dæmi séu tekin. Nú er þar glæsileg ÁTVR verslun þar sem opið er til 18 alla daga nema sunnudaga auðvitað. Á föstudögum er opið til 19. Reiturinn er orðinn það vinsæll að skipulagsnefnd bæjarins hefur lýst yfir áhyggjum af auknu umferðarálagi. Vill formaður nefndarinnar að framkvæmdum við breytingar á gatnakerfinu verði hraðað. Steinþór segir að fyrst ÁTVR hafi verið búið að opna á möguleikann á sérverslun og miðbæ Garðabæjar vanti vínbúð sé ekki úr vegi að fyrsta sérverslun ÁTVR rísi þar. „Fyrst ÁTVR var búið að opna á þennan möguleika þá vildum við senda áskorun um að opna sérverslun með léttvín í miðbænum.“ Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að ekkert hafi verið ákveðið hvort sérverslunin muni rísa. Málið sé í ferli. „Ef við fáum erindi þá verður það skoðað en það liggur ekki fyrir nein ákvörðun um að fara í svoleiðis verkefni.“
Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Sjá meira