Veitur lækka verð á rafmagnsdreifingu Atli Ísleifsson skrifar 1. nóvember 2017 08:48 Í tilkynningu frá Veitum segir lækkunina megi rekja til hagkvæms rekstrar fyrirtækisins. Vísir/gva
Veitur hafa ákveðið að lækka verð á rafmagnsdreifingu um 7,5 prósent í dag, 1. nóvember. Í tilkynningu frá Veitum segir lækkunina megi rekja til hagkvæms rekstrar fyrirtækisins. „Þetta er í annað skipti á innan við ári sem verð fyrir rafmagnsdreifingu lækkar. Síðast var það 1. janúar síðastliðinn. Þá lækkaði það um 5,8%. Rafveita Veitna þjónar svæðinu frá Akranesi í vestri suður í miðjan Garðabæ. Á þessu svæði býr meira en helmingur þjóðarinnar og þar er mikill atvinnurekstur. Helstu mannvirki dreifikerfisins eru aðveitustöðvar, spennistöðvar og háspennustrengir á milli þeirra, tengikassar í götum og heimtaugar. Samanlögð lengd allra strengjanna er um 3.500 kílómetrar, sem svarar gróflega til vegalengdarinnar frá Reykjavík til Moskvu í Rússlandi. Dreifingarkostnaðurinn, sem oft er um helmingur rafmagnsreiknings heimila, skiptist í fast gjald á dag og svo verð á hverja notaða kílóvattstund. Báðir þessir þættir lækka um 7,5% en aðrir hlutar gjaldskrárinnar standa í stað. Auk rafmagnsdreifingarinnar innheimta Veitur flutningsgjald fyrir Landsnet og jöfnunargjald og virðisaukaskatt fyrir ríkissjóð. Þessir þættir rafmagnsreikningsins breytast ekki nú um mánaðamótin. Sala rafmagns er á samkeppnismarkaði og fólk og fyrirtæki geta valið á milli raforkusala,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira