Lífið

Íslenskt hygge?

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Kunna Íslendingar að hafa það huggulegt?
Kunna Íslendingar að hafa það huggulegt? Nordicphotos
Orðið hygge var tilnefnt sem orð ársins 2016 hjá Oxford-orðabókinni og þótti eitt þeirra orða sem endurspegluðu þá hugmyndafræði sem ríkti árið á undan. Hygge merkir að skapa þægilegt andrúmsloft vellíðunar og er sagt nokkurs konar einkenni danskrar menningar.

Danir eru sagðir kunna að hafa það notalegt, vera með vinum og fjölskyldu, vera í núinu og njóta lystisemda lífsins, stórra sem smárra. En skyldu Íslendingar kunna að hafa það huggulegt? Er eitthvað til sem mætti kalla íslenskt hygge?

Bryndís Björgvinsdóttir, rithöfundur og þjóðfræðingur
Hlýjar náttbuxur eru kósí

Bryndís Björgvinsdóttir

rithöfundur og þjóðfræðingur



„Ég hef ekki búið í Danmörku eða Svíþjóð að ráði þar sem orðið „hygge“ er notað í miklum mæli. Foreldrar mínir bjuggu hins vegar í Danmörku og þau ólu mig upp í miklum kósí- eða hyggelig-heitum í Hafnarfirði. Ákveðin birta getur verið „kósí“ og afslappelsi fyrir framan sjónvarp, arineld eða einfaldlega við matarborðið er álitið vera „kósí“. Lítil og falleg hús eru „kósí“ og hlýjar náttbuxur eru „kósí“. Jólin eru að sjálfsögðu virkilega „kósí“ og svo hefur pabbi einnig talað um að „huslig“ karlmenn eða „huslig“ konur séu kósí – það er að segja þeir sem njóta þess að vera heima hjá sér, gera notalegt í kringum sig og hella upp á kaffi, helst í náttsloppnum. Kannski snýst það að hafa kósí eða hygge einmitt um að nýta þessi tækifæri, þegar við getum ýtt vinnu og áhyggjum til hliðar, og notið hlýjunnar og birtunnar – myrkursins og kuldans – og allra þessara litlu hluta í kringum okkur án þess að finna fyrir óöryggi, vanmætti eða einmanaleika. Hlutirnir koma þess heldur heim og saman og andrými gefst til að láta hugann reika og dag­dreyma.“

 

 

 

Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur. Fréttablaðið/Anton Brink
Íslendingar hygge sig í aksjón

Sólveig Ólafsdóttir

sagnfræðingur



„Íslendingar eru svo verkdrifnir að þeir hygge sig í aksjón og helst þar sem aðrir sjá þá.



Einnig þurfa þeir helst að vera búnir að vinna fyrir hygginu. Fyrst þarf að synda og svo fara í pottinn. Fyrst þarf að fara í ræktina og svo í slökun. Þeir hygge sig til dæmis á kóræfingum sem ennþá eru á fimmtudagskvöldum því einu sinni var sjónvarpið í fríi á fimmtudögum.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×