Borgin sættir sig ekki við sameiginlegt verðmat á Keldnaholti 28. apríl 2017 07:00 Húsnæðisvandinn er mikill á höfuðborgarsvæðinu. vísir/vilhelm
Reykjavíkurborg hefur ekki getað sætt sig við sameiginlegt verðmat hlutlausra aðila sem skipaðir hafa verið af borg og ríki á Keldum og Keldnaholti, Landhelgisgæslureitnum og Þorragötu. Þetta kemur fram í svari Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um ráðstöfun ríkislóða á höfuðborgarsvæðinu. „Það stendur ekki á okkur að selja þessar lóðir,“ segir Benedikt. Borgin, líkt og önnur sveitarfélög, fari hins vegar með skipulagsréttinn og ef það er ekki búið að skipuleggja lóðirnar sé ekki forsenda til að selja. „Við erum mjög spennt að ganga til samninga um þessi mál og alveg til í að gera samkomulag við borgina eins og við gerðum við Garðabæ til dæmis,“ segir hann en ríkið seldi lóðir við Vífilsstaði auk þess að gera ábatasamning, þar sem ábata af sölu á byggingarrétti yrði skipt milli ríkis og sveitarfélags.Benedikt Jóhannesson.vísir/ernirÍ svarinu kemur fram að viðræður hafi verið við Reykjavíkurborg með hléum um langt skeið um landið við Keldur og Keldnaholt. Hefur ríkið ítrekað lagt til að gerður yrði ábataskiptasamningur um landsvæðið en í kjölfarið hafi Reykjavíkurborg ákveðið að draga verulega úr uppbyggingu þar með nýju aðalskipulagi, auk þess að seinka uppbyggingu þess. Það eru því ekki forsendur fyrir uppbyggingu landsins í nánustu framtíð. Í svari Benedikts segir að erindi sé á sínum borðum þar sem óskað er eftir viðræðum um samstarf ríkis og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu íbúðar- og leiguhúsnæðis á Landhelgisgæslulóðinni, Sjómannaskólareitnum, SS-reitnum, Borgarspítalareitnum, Veðurstofuhæð og Suðurgötu – Hringbraut. Það erindi sé í eðlilegum farvegi innan ráðuneytisins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Sjá meira