Unglingsstúlku haldið nauðugri í húsbíl í 29 daga Þórdís Valsdóttir skrifar 10. september 2017 13:15 Stúlkunni var haldið nauðugri af þremur mönnum í 29 daga. Vísir/Getty
Fimmtán ára gamalli stúlku í Minnesota ríki Bandaríkjanna var haldið nauðugri í 29 daga og þurfti að þola mikið ofbeldi. Hún flýði árásarmenn sína síðastliðinn þriðjudag og synti yfir stöðuvatn til að komast undan. Unglingsstúlkan var lokkuð burt af heimili sínu í bænum Alexandria af vini föður hennar sem hélt henni nauðugri í húsbíl í næsta bæ. Maðurinn, Thomas Barker, kom upp að henni við heimili hennar og bað hana um aðstoð því sonur hans væri að hegða sér illa. Hún lét blekkjast og elti manninn að bíl hans þar sem hann rændi henni. Móðir hennar tilkynnti hvarf hennar til lögregluyfirvalda stuttu síðar. Barker var ekki einn að verki. Tveir vinir hans tóku þátt í hvarfi stúlkunnar og þeim misþyrmingum sem hún þurfti að þola á þeim 29 dögum sem þeir héldu henni. Stúlkunni var nauðgað ítrekað, hún var látin dúsa í litlum skáp og þurfti að þola barsmíðar mannanna. Stúlkunni tókst að komast undan mönnunum eftir tæplega mánaðardvöl í húsbílnum. Mennirnir fluttu hana á annan stað og skipuðu henni að leita matar þar, þaðan flýði hún. Stúlkan stökk út í nærliggjandi stöðuvatn og synti að íbúðahverfi í nágrenninu. „Ég er ekki góð að synda," sagði stúlkan í viðtali við WCCO fréttastöðina í Minnesota. Hún hljóp húsa á milli og barði að dyrum þar til eldri bóndi sá til hennar og kom henni til bjargar. Hann þekkti andlit hennar strax því lýst hafði verið eftir henni í tæpan mánuð. Mennirnir voru handteknir samdægurs og málið er í rannsókn. Barker hefur neitað sök en sagðist hafa verið undir áhrifum metamfetamíns og áfengis.
Mest lesið Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Erlent Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Innlent Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Erlent Tólf prósent Íslendinga á bótum Innlent Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Erlent Fleiri fréttir Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Sjá meira