Innlent

Fundu skotvopn og fíkniefni

Samúel Karl Ólason skrifar
Við leitina fundust vopn, fíkniefni og fjármunir.
Við leitina fundust vopn, fíkniefni og fjármunir.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann skotvopn við húsleit í síðustu viku. Bæði fundust haglabyssa og skammbyssur og skotfæri þar að auki. Sömuleiðis fundust fíkniefni og fjármunir við leitina, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

Talið er að fíkniefnin sem fundust séu amfetamín, kókaín og e-töflur. Peningarnir eru taldir vera hagnaður vegna fíkniefnasölu. Þar að auki fundust sterar í húsnæðinu.

Lögreglan segir að karl um fertugt, húsráðandi íbúðarinnar, hafi verið yfirheyrður vegna rannsóknarinnar.

Lögreglan minnir á ábendingarsímann 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×