BHM lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu kjaraviðræðna Ingvar Þór Björnsson skrifar 29. desember 2017 17:54 Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður BHM. Vísir/Vilhelm
Bandalag háskólamanna, BHM, lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu kjaraviðræðna sautján aðildarfélaga bandalagsins við ríkið. Þau telja nauðsynlegt að komið verði til móts við kröfur félaganna. Í yfirlýsingu frá BHM í tilefni af fundi stjórnvalda með aðilum vinnumarkaðarins í dag kemur fram að lítið hafi miðað í viðræðum. „Samningar félaganna hafa verið lausir í fjóra mánuði eða allt frá því að gildistími gerðardóms frá árinu 2015 rann út í lok ágúst. Lítið hefur þó miðað í viðræðunum.“ Þá bendir bandalagið á að Félag íslenskra náttúrufræðinga hafi vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara.Stórir hópar háskólamenntaðra sérfræðinga hjá ríkinu fara á eftirlaun, t.a.m. innan heilbrigðis- og menntakerfisins.Vísir/GVALaunasetning félagsmanna óeðlilega lág og í engu samræmi við menntunBHM segir í yfirlýsingunni að mikilvægt sé að komið verði til móts við réttmætar og sanngjarnar kröfur félaganna um að menntun verði metin til launa. „Hækka þarf laun á mörgum ríkisstofnunum þar sem launasetning félagsmanna er óeðlilega lág og í engu samræmi við menntun þeirra, reynslu og ábyrgð. Einnig leggur BHM áherslu á að tryggt verði að launaþróun félagsmanna verði í samræmi við launaþróun viðmiðunarhópa.“ Í yfirlýsingunni segir að nauðsynlegt sé að bæta starfsumhverfi á mörgum stofnunum. Enn fremur bendir BHM á að á næstunni munu stórir hópar háskólamenntaðra sérfræðinga hjá ríkinu fara á eftirlaun. „Vandséð er að hægt verði að fylla í skörðin nema laun og starfsaðstæður á viðkomandi stofnunum verði bætt verulega.“ Að mati BHM vekur fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2018 ekki vonir um að gerðar verði nauðsynlegar úrbætur í þessu tilliti.Fjölmennir hópar kvenna sem hafa lág laun miðað við menntunBHM áréttar einnig í yfirlýsingunni að innan bandalagsins séu fjölmennir hópar kvenna sem hafa lág laun miðað við menntunarstig. Fagstéttir sem starfa í heilbrigðis- og menntageiranum eru sérstaklega nefndar. „Verðmæti þeirrar menntunar sem þessar stéttir hafa aflað sér endurspeglast alls ekki í launasetningu þeirra. Brýnt er að endurmeta laun þessara sérfræðinga og taka tillit til þeirrar menntunar sem þeir hafa aflað sér,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Íranir enn vígreifir Erlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fleiri fréttir Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Sjá meira