Hafa trú á að Alþingi leiðrétti kjör örorkulífeyrisþega Ingvar Þór Björnsson skrifar 10. desember 2017 20:49 Þuríður Harpa Sigurðardóttir segir að jákvæður tónn sé í viðræðum bandalagsins við stjórnvöld. Vísir/Hanna
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, átti fund með Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttisráðherra, í vikunni ásamt fleiri fulltrúum ÖBÍ. Það fóru fulltrúar bandalagsins yfir tillögur þess um úrbætur í málefnum öryrkja og fatlaðs fólks. Ráðherranum var einnig afhent minnisblað þar sem tillögur bandalagsins voru settar fram með rökstuðningi. Í fréttatilkynningu frá Öryrkjabandalaginu er bent á að ráðamenn hafi lýst yfir auknum fjárframlögum til heilbrigðismála, menntamála og samgöngumála, sem sé góðra gjalda vert, en hafi skilið málaflokk þeirra eftir. „Hins vegar hafa ekki komið yfirlýsingar um aukin framlög til almannatrygginga og annarra málaflokka sem heyra undir félags- og jafnréttisráðherra,“ segir í tilkynningunni.Vilja sjá tekju- og eignarmörk hækkuð„Skerðingar, króna á móti krónu, verður að afnema strax og það er margt fleira sem við leggjum áherslu á að verði að veruleika í fjárlagavinnu Alþingis. Við viljum sjá tekju- og eignarmörk hækkuð og lífeyri almannatrygginga hækka verulega svo fólk geti framfleytt sér í íslensku samfélagi,“ segir Þuríður. Þá nefnir hún jafnframt að nauðsynlegt sé að lögfesta NPA, notendastýrða persónulega aðstoð, fyrir áramót.Jákvæður tónn í viðræðum við stjórnvöldSegir hún að jákvæður tónn sé í viðræðum bandalagsins við stjórnvöld og að samtalið sé lifandi. „Það er fagnaðarefni í sjálfu sér, sem og sú staðreynd að sérstaklega er fjallað um þessi máli í stjórnarsáttmálanum. Vonandi hefur það í för með sér að við náum okkar markmiðum. En það þarf strax að grípa til aðgerða og við verðum að sjá þess merki í fjárlögum næsta árs,“ segir Þuríður. „Öfugt við laun á vinnumarkaði hafa tekjur örorkulífeyrisþega rýrnað flest undanfarin ár. Helmingur þessa hóps hefur heildartekjur undir 272 þúsund krónur á mánuði og hópur fólks hefur heildartekjur undir 80.000 krónum, svo dæmi sé tekið. Fjölmargir búa við sára fátækt og óviðunandi lífsafkomu. Það blasir við að auka verður framlög til málefna fatlaðs fólks og öryrkja.“
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Fleiri fréttir Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Sjá meira