Unnu þrekvirki í eldsvoðanum Aron Ingi Guðmundsson skrifar 12. desember 2017 07:15 Húsnæði í eigu Hraðfrystihúss Gunnvarar á Ísafirði gjöreyðilagðist en Rauða húsinu var naumlega bjargað. Vísir/Ágúst Atlason
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú eldsvoða, en útgerðarhúsnæði í eigu Hraðfrystihúss Gunnvarar á Ísafirði gjöreyðilagðist er það varð eldi að bráð síðastliðið föstudagskvöld. Bæjarstjóri Ísafjarðar segir gott að sjá fagmennsku og þekkingu slökkviliðsins skila sér. „Húsið við hliðina, Rauða húsið svokallaða, var í mikilli hættu en með hárréttum viðbrögðum og áherslu tókst slökkviliðinu að bjarga því. Það hefði verið voðalegt ef eldurinn hefði náð í það hús – gamalt frystihús og verðmæti þar líka. Magnað að sjá fagmennsku og þekkingu skila sér með þessum hætti,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Kristján G. Jóakimsson, framkvæmdastjóri framleiðslu og sölumála hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru, segir að betur hafi farið en á horfðist.Gísli Halldór Halldórsson„Húsið er gjörónýtt, það brann til kaldra kola. Sem betur fer var enginn í húsinu. Eins mikill eldur og þetta var þá er maður þakklátur fyrir að enginn skyldi skaðast.“ Kristján segir að dagleg starfsemi hafi verið í húsinu sem brann og því hafi þurft að finna annað húsnæði fljótt. „Við náðum samkomulagi við vélsmiðju á Ísafirði sem er hinum megin við götuna.“ Lögreglan á Vestfjörðum segir að úrvinnslu úr vettvangsgögnum ætti að ljúka á næstu dögum og þá verði vonandi hægt að segja til um eldsupptök. „Vettvangsrannsókn lauk þarna á laugardagskvöldinu, svo höfum við verið að vinna úr gögnum síðan. Það voru þarna þrjár skemmur sem voru samliggjandi, við tókum ákvörðun um að jafna tvær þeirra við jörðu til að verja nærliggjandi hús og það tókst. Þriðja skemman stendur enn uppi en er gjörónýt,“ segir Hlynur Hafberg Snorrason yfirlögregluþjónn. Hlynur segir að þeir aðilar sem komu að málum hafi unnið vel saman. „Slökkvilið Ísafjarðar fékk aðstoð frá slökkviliðinu á Bolungarvík og flugvellinum. Svo kom björgunarsveitin og aðstoðaði við að loka svæðinu, auk þess sem aukamannskapur var kallaður út hjá lögreglu. Aðstæður voru líka mjög góðar, nánast logn og þetta er fjarri íbúabyggð. Það má segja að þetta hafi verið eins lánlegt og hægt er að hugsa sér.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira