Mikilvægt að kveða á um víðtækara bann við notkun snjalltækja Ingvar Þór Björnsson skrifar 14. október 2017 10:57 Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Vísir/Vilhelm
Samgönguþing unga fólksins var sett í dag klukkan tíu á Grand hótel í Reykjavík. Hugmyndin með Samgönguþingi unga fólksins er að kalla eftir samráði frá ungu fólki um mál eins og akstur undir áhrifum, bílprófsaldur, tekjutenging sekta og hertari refsingar við umferðarlagabrotum. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, setti þingið klukkan tíu í morgun. Í ræðu sinni talaði hann um mikilvægi þess að setja á víðtækara bann við notkun snjalltækja. Sagði hann að í gildandi lögum væri ekki tekið á notkun snjalltækja í akstri, aðeins væri talað um að ökumanni ökutækis væri óheimilt að nota farsíma við akstur án handfrjáls búnaðar auk þess sem bann væri lagt við sendingum og lestri smáskilaboða. Vill ráðherra ráðast í breytingar á lögunum og koma á víðtækara banni við notkun snjalltækja.Taka þurfi afstöðu til þess hvort krefjast eigi prófs á létt bifhjólÞá nefndi ráðherrann einnig í ræðu sinni að síðan upphafleg vinna við frumvarp til umferðarlaga fór fram, hefur orðið mikil gerjun í þróun samgöngutækja og samgangna hér á landi. Því þyrfti að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að skoða sérstakar reglur um notkun reiðhjóla í umferð en Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur gert ýmsar athugasemdir í kjölfar banaslyss sem varð í Ártúnsbrekku. Ráðherrann nefndi jafnframt að skoða þyrfti að setja á ákvæði sem gilda um létt bifhjól. Taka þurfi afstöðu til þess hvort eigi að gera þau tryggingaskyld eða krefjast prófs á slík hjól eða hvort setja þurfi reglur um flutning farþega á léttum bifhjólum.
Mest lesið Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Segir Ísland geta komist í ESB á einu og hálfu ári Erlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Stúlkan sem leitað var að er fundin Innlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Fleiri fréttir Snjókoma og slydda fyrir norðan en þurrt fyrir sunnan Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Lokar athugun á eftirliti MAST með blóðmerahaldi án athugasemda Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Stúlkan sem leitað var að er fundin Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Sjá meira