Mnuchin segir ekki í forgangi að koma Harriet Tubman á seðil Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2017 10:53 Jack Lew, fjármálaráðherra í ríkisstjórn Barack Obama, lagði til að andlitsmynd af Harriet Tubman yrði komið fyrir á 20 dala seðlinum. Vísir/AFP
Jack Lew, fjármálaráðherra í ríkisstjórn Barack Obama, lagði á síðasta ári til að mynd af Harriet Tubman, sem barðist fyrir frelsun þræla á nítjándu öldinni, yrði á nýjum tuttugu dala seðli. Með tillögu sinni lagði Lew til að sjöunda forseta Bandaríkjanna og þrælahaldaranum Andrew Jackson, yrði þar skipt út á framhlið seðilsins fyrir Tubman en að andlit Jackson yrði áfram á bakhliðinni. Skyldi það gert við fyrirhugaða endurhönnun árið 2020. Núsitjandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Steve Mnuchin, segir málið þó ekki vera í neinum forgangi hjá sér. „Við munum líta á þetta. En þetta er ekki mál sem ég einbeiti mér að nú,“ sagði Mnuchin í samtali við CNBC. Vitað er að Andrew Jackson er í uppáhaldi hjá Donald Trump Bandaríkjaforseta sem hefur komið portrettmynd af Jackson fyrir á forsetaskrifstofunni. Í kosningabaráttunni sagði Trump að „Harriet Tubman væri frábær“ en að það væri sér ekki að skapi að skipta Jackson út fyrir Tubman vegna „pólitísks rétttrúnaðar“. Tubman fæddist árið 1822 og var haldið sem þræl á fyrri hluta nítjándu aldarinnar. Síðar átti hún eftir að aðstoða hundruð þræla að flýja frá þrælahöldurum sínum. Hún lést sem frjáls kona árið 1913.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira