Ætluðu sér að sprengja banka í Frakklandi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 8. september 2017 06:00 Lögreglan brást snarlega við tilkynningunni. vísir/EPA
Tilkynning kaupmanns varð til þess að franska lögreglan uppgötvaði að hópur manna ætlaði að sprengja banka í Villejuif-úthverfi Parísarborgar. Frá þessu sagði Gérard Collomb, utanríkisráðherra Frakklands í gær. Lögregla var kölluð út í íbúð í Villejuif á miðvikudaginn þar sem hundrað grömm af aseton-peroxíði fundust, en efnið er afar öflugt sprengiefni sem hægt er að búa til úr saltsýru, vetnisperoxíði og asetoni. Var efnið, sem jafnan er kallað TATP, til að mynda notað við sprengjutilræði í neðanjarðarlestum í Lundúnum árið 2005. Þrír menn voru handteknir en Collomb sagði að þremenningarnir segðust ekki tengjast hryðjuverkasamtökum. Þó bætti ráðherrann því við að þeir hefðu verið í símasambandi við fólk í Sýrlandi. „Þeir vildu sprengja upp banka með TATP, en við sjáum það núna að þeir tengjast hryðjuverkamönnum, við verðum að skoða það,“ sagði Collomb við FranceInfo TV.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Sjá meira