Erlent

Sprenging nærri bandaríska sendiráðinu í Kabúl

Atli Ísleifsson skrifar
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Vísir/AFP
Sjálfsvígssprengjumaður sprengdi sjálfan sig í loft upp í banka í nærri bandaríska sendiráðinu í afgönsku höfuðborginni Kabúl í morgun.

Minnst fimm létu lífið og nokkur fjöldi særðist að sögn stjórnvalda.

Mikill fjöldi fólks var í bankanum að taka út reiðufé enda Eid al-Adha trúarhátíðin á næsta leiti og bankar þá lokaðir.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni, en talibanar hafa áður staðið fyrir sambærilegum árásum í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×