Fjölskyldugarðurinn alveg að grotna niður Benedikt Bóas skrifar 2. júní 2017 08:45 Litli leikkastalinn er orðinn mjög sjúskaður en það er ekki hægt að mála hann enda plasthúðaður. vísir/anton brink „
Ef Reykjavíkurborg ætlar að hafa þessa starfsemi þá er það skylda hennar að sjá til þess að rekstrinum og viðhaldi sé sinnt. Það eru mörg sóknarfæri í þessari skemmtilegu starfsemi,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins en mörg tæki þarfnast endurnýjunar, viðhalds og margt er hreinlega orðið ónýtt. Nokkur tæki verða ekki í notkun í sumar vegna niðurskurðar á atvinnu fyrir unglinga. Fyrir utan leiktækin eru girðingar löngu úr sér gengnar. Alvarlegast sé þó aðstöðuleysi, fyrir kennslu og starfsfólk sem uppfyllir ekki lágmarkskröfur. Kostnaður við endurnýjun og viðgerðir er áætlaður 32,4 til 37,4 milljónir króna, fyrir utan kostnað vegna girðinga og starfsmannaaðstöðu. Þetta kemur fram í svörum sviðsstjóra ÍTR við fyrirspurn fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina.Vísir/Anton BrinkListinn yfir tæki sem þarf að laga er langur. Krakkafoss, báturinn frægi sem snýst, er viðhaldsfrekur og þarfnast endurnýjunar enda á fermingaraldri. Lestin er 16 ára og í henni þarf að endurnýja rafgeyma. Komið er að því að endurnýja hluta af ökuskólabílunum, öll ljósin í hinni 15 ára hringekju eru ónýt, fallturninn er áratugagamall, brunabíllinn er ónýtur, litli leikkastalinn sjúskaður og Naglfar, stóra leikkastalaskipið, þarf að mála og dytta að. Þá er æskilegt að setja viðunandi undirlag eins og er við skóla við skipið. Fjölga þarf rafmagnsbílum fyrir yngri börn og bæta akstursaðstöðu. Tómas segir að hann vonist eftir auknu fjármagni. „Eftir langvarandi hlé verða vonandi stigin fyrstu skrefin til að bæta garðinn. Það hefur staðið til að gefa í frá því fyrir hrun. Þetta er mikið til uppsafnað. Nú þurfa allir góðir menn að taka höndum saman og gefa í.“Vísir/Anton BrinkVísir/Anton Brink
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Eldur í Árbænum Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Hafnar kreddum um verðbólguna Innlent Fleiri fréttir Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Sjá meira