Fimmtán prósent áhugasamra stúdenta komast að í lækninum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. júní 2017 16:00 Vænta má að töluvert margir MR-ingar séu á meðal þeirra 311 sem ætla að þreyta prófið. Myndin er frá dimmisjón á dögunum. Vísir/Ernir
311 stúdentar munu þreyta inntökupróf í læknisfræði við Háskóla Íslands í næstu viku. 48 pláss eru í boði. Um er að ræða fjórðungsaukningu í skráningu á milli ára en 246 tóku prófið í fyrra sem var um tíu prósent aukning frá árunum tveimur á undan. Prófið fer fram á fimmtudag og föstudag í næstu viku en á sama tíma keppast 56 stúdentar um að komast í nám í sjúkraþjálfun þar sem 35 sæti eru í boði. Undanfarin ár hafa um fimmtíu stúdentar þreytt inntökuprófið í sjúkraþjálfun. Fjöldi nemenda sem fær inngöngu miðast við afkastagetu sjúkrahúsanna við verklega þjálfun nemenda. Skráningu lauk þann 20. maí en próftökugjald er tuttugu þúsund krónur. Prófin taka tvo daga og samanstanda af fjórum tveggja tíma próflotum og A-prófi (aðgangsprófi fyrir háskólastig) sem tekur þrjár og hálfa klukkustund. A-prófið gildir 30 prósent af heildinni. Prófin fara fram í húsakynnum Menntaskólans við Hamrahlíð. Þeir sem þreyta prófin en komast ekki inn eiga þess kost að skrá sig í aðrar deildir HÍ til 20. júlí. Inntökupróf í læknisfræði hafa farið fram síðan sumarið 2003 en þau tóku við af samkeppnisprófum, numerus clausus, sem nemendur þreyttu í lok fyrsta haustmisseris.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira