Lána fyrir íbúðakaupum: Nokkrar lánaumsóknir borist á fyrsta degi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 3. maí 2017 20:00
Lánasjóðurinn Framtíðin býður nú viðbótarlán vegna íbúðarkaupa með verðtryggðum vöxtum. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að nú þegar hafi nokkrar lánaumsóknir borist en byrjað var að bjóða upp á þjónustuna í morgun. Lánin komi til með að henta þeim sem vantar viðbót fyrir útborgun í íbúð. Fréttablaðið greindi frá því í dag að lánasjóðurinn Framtíðin, sem er fjármagnaður í gegnum skuldabréfasjóði í stýringu hjá fjármálafyrirtækinu Gamma, hafi fengið leyfi Fjármálaeftirlitsins til að bjóða fasteignalán. Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar, útskýrir að um sé að ræða viðbótarlán vegna íbúðarkaupa, til að hámarki 25 ára á öðrum eða þriðja veðrétti, frá einni og upp í átta milljónir króna. Þannig geta lántakendur skuldsett sig um sem nemur 90 % af verði fasteigna. „Við erum að fylgja fyrirmyndum erlendis frá,“ segir Hrólfur Andri.Ef keypt er 40 milljón króna íbúð og 26 milljónir eru fengnar að láni hjá annari lánastofnun á 3,5 prósent vöxtum og einstaklingur leggur til 6 milljónir í eigið fé yrðu vextir til sjóðsins 6,10 prósent. Þannig yrði fyrsta greiðsla 101.130 krónur til lánastofnunarinnar og 52.611 krónur til sjóðsins. Fyrsta greiðslan væri því samtals 157.741. Ef lántakinn kemur með 7 milljónir í eigið fé yrðu vextirnir á viðbótarláninu 5,84 prósent og fyrsta greiðsla 44.996 krónur af viðbótarláninu. Þannig ráðast vextirnir, sem eru verðtryggðir, af því hversu mikið eigið fé lántakinn leggur til. Hrólfur segir að eftirspurnin sé greinilega til staðar. „Við opnuðum vefinn í gærkvöldi og það eru nokkrar umsóknir komnar. Bæði í nótt og í morgun.“En er með þessu ekki verið að hvetja til of mikillar skuldsetningar? „Svona lán eru í boði á markaðnum í dag. Sumir bankarnir eru að lána allt að 85 prósent fyrir fyrstu kaupendur. Við vitum að fólkið er að brúa bilið með allskonar skammtímafjármögnun. Þetta er í raun ekkert stór breyting að við séum núna að lána upp í 90 prósent. Þetta eru 25 ára lán þannig þau eru miklu viðráðanlegri en einhver skammtímalán,“ segir Hrólfur Andri.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira