Í gæsluvarðhald grunaður um að hafa labbað út úr búð í Kringlunni í stolnum fötum 4. maí 2017 15:25 Maðurinn var handtekinn um helgina í Kringlunni. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því á þriðjudag þess efnis að síbrotamaður skuli sæta gæsluvarðhaldi þar til þann 30. maí næstkomandi. Í úrskurði héraðsdóms, þar sem vísað er í greinargerð lögreglu, segir að um helgina hafi maðurinn verið handtekinn í Kringlunni eftir að óskað hafði eftir aðstoð lögreglu þar sem talið var að maðurinn hefði stolið fötum í verslun. Starfsmaður verslunarinnar sagði lögreglu að maðurinn hefði komið inn, týnt til fatnað og sett í tösku sem hann hafði með sér. Þá hafi hann farið inn í mátunarherbergi með töskuna og klætt sig þar í fötin sem hann hafði tekið til og sett í töskuna. Maðurinn hafi því næst gengið að afgreiðslukassanum, skilið töskuna eftir og labbað út úr versluninni. Öryggisverðir hafi beðið fyrir utan eftir manninum en gömlu fötin hans voru í íþróttatöskunni sem hann skildi eftir. Búið hafði verið að eiga við þjófavarnirnar á fötunum sem hann hafði farið í inni í versluninni. Ætluð fíkniefni fundust svo á manninum þegar hann var færður í fangaklefa og játaði hann vörslu þeirra við skýrslutöku hjá lögreglu en neitaði þjófnaðinum á fatnaðinum. Auk þess sem maðurinn er grunaðurinn um þjófnaðinn í versluninni er maðurinn grunaður um fjölda annarra þjófnaða á síðustu vikum og mánuðum.Dóm Hæstaréttar má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira