Talar opinskátt um krabbameinið á Snapchat Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 9. apríl 2017 20:00 Héðinn Máni er greindist með þriðja stigs krabbamein fyrir fimm vikum. Hann ætlar sér að takast á við það með húmorinn að vopni. VISIR/SIGURJÓN
Nokkur þúsund manns fylgjast nú með daglegu lífi sautján ára pilts, sem greindist með illkynja krabbameinsæxli fyrir skömmu, í gegnum samfélagsmiðlaforritið Snapchat. Hann segist ætla að takast á við veikindin með húmorinn að vopni. Héðinn Máni er fæddur árið 1999 og býr ásamt fjölskyldu sinni í Vogum á Vatnsleysuströnd. Fyrir fimm vikum greindist hann með sjaldgæfa tegund krabbameins, slímhimnukrabbamein, illkynja æxli í höfði. „Þetta er náttúrulega ákveðið áfall. En ég bara reyni að lifa í núinu. Taka einn dag í einu og vera jákvæður,“ útskýrir hann.Fær mikinn stuðning á Snapchat Eins og flestir á hans aldri hefur Héðinn undanfarin ár haldið úti Snapchat-reikningi fyrir vini og vandamenn. Þegar hann greindist og fór í fyrstu lyfjameðferðina talaði hann um það á opinskáan hátt á sínu snappi, eins og það er kallað, og áður en hann vissi af voru fylgjendurnir orðnir nokkur þúsund. „Ég fæ spurningar frá allskonar fólki og það er aðallega verið að spyrja út í hvernig ég greindist með krabbameinið. Ég svara þeim oftast í story. Svo hef ég líka fengið mjög mikla hjálp í gegnum Snapchat. Frá fólki á mínum aldri sem hefur gengið í gegnum svipað. Mér finnst það bara mjög gott og góður stuðningur í því,“ segir Héðinn.Með húmorinn að vopni Héðinn hefur mikinn áhuga á kvikmyndagerð og segir að Snapchat sé að mörgu leyti líkt henni. Þannig sé hann að búa til stuttmyndir á hverjum degi. Hann er staðráðin í að takast á við veikindin með jákvæðni og húmor að vopni. „Það tók mig samt alveg smá tíma að melta að ég væri með þennan sjúkdóm. En ég hef bara alltaf verið þannig að ég er bara rosalega jákvæður. Á erfiðum tímum er gott að vera jákvæður. Ég ætla bara að rústa þessu eins og stríðsmaður.“ Hægt er að fylgjast með Héðni Mána á Snapchat undir notendanafninu heddimani.
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Sjá meira