Wenger, hefur þú séð hvað gerist þegar Coquelin spilar ekki? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2017 10:15 Francis Coquelin. Vísir/Getty
Arsene Wenger fær örugglega nóg af gagnrýni eftir vandræðalegt stórtap á móti Bayern München í gær og stór hluti stuðningsmanna félagsins er fyrir löngu búinn að fá leið á að upplifa alltaf sömu hlutina á þessum tíma ársins. 5-1 tap í fyrri leiknum á móti Bayern München þýðir að Meistaradeildartímabilið endar enn einu sinni í sextán liða úrslitunum. Francis Coquelin er í mikilvægu hlutverki á miðju Arsenal-liðsins en er kannski kominn tími á það að Wenger reyni aðra kosti. Coquelin leit ekki vel út þegar Arjen Robben skoraði fyrsta mark Bayern-liðsins í gær og hann hefur verið að gera dýrkeypt mistök í leikjum liðsins að undanförnu. Kannski er besta lausnin fyrir Arsene Wenger að henda Coquelin út úr liðinu. Tölfræðin segir það að minnsta kosti. Coquelin er búinn að missa af tíu leikjum á tímabilinu og Arsenal hefur unnið þá alla. Það sem meira er að markatalan í leikjunum tíu er 30-4 Arsenal í hag. Liðið er samt að skora 3 mörk í leik og fá aðeins 0,4 mörk á sig í leik á þessu tímabili þegar Francis Coquelin kemur ekkert við sögu í leiknum. Það hefur gengið illa fyrir Wenger að finna varnartengilið eftir að Patrick Viera yfirgaf Arsenal og fyrir vikið hefur verið lítið um titla hjá lærisveinum Wenger. Það geta flestir verið sammála að Coquelin er ekki rétta svarið. Hvort að Wenger viti af þessari tölfræði í leikjum án Coquelin er ekki vitað en einhver mætti í það minnsta benda honum á hana.Leikirnir sem Francis Coquelin hefur misst af á tímabilinuMeistaradeildin: 2 leikir, 2 sigrar 2-0 sigur á Basel 4-1 sigur á BaselEnska úrvalsdeildin: 4 leikir, 4 sigrar 3-1 sigur á Watford 1-0 sigur á Burnley 3-1 sigur á Bournemouth 4-0 sigur á SwanseaEnska bikarkeppnin: 2 leikir, 2 sigrar 2-1 sigur á Preston 5-0 sigur á SouthamptonEnski deildabikarinn: 2 leikir, 2 sigrar 4-0 sigur á Nottingham Forrest 2-0 sigur á ReadingSamanlagt: 10 sigrar í 10 leikjum Markatalan: +26 (30-4)
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira