Hæstiréttur ómerkti þann dóm í gær og verður málið tekið til meðferðar á nýjan leik í héraði á nýju ári.
Hjalti fagnaði tímabundnu frelsi Árna seinni partinn í gær. Hann á eftir að afplána fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir líkamsárás í ótengdu máli.
Óbreytt ákæra í héraði
Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari sem sótti málið, segir í samtali við Vísi að mögulega verði fenginn dómkvaddur matsmaður til þess að meta betur þá áverka sem var að finna á manninum sem Árna var gefið að sök að hafa stungið með hníf.
Vísir hefur fjallað ítarlega um málið, eins og sjá má í fyrri fréttum hér að neðan, en blaðamaður Vísis sat meðferð málsins í Hæstarétti.
Deilt er um hvort Árni hafi stungið mann með hnífi eða maðurinn ráðist að Árna með hnífi sem hafi varið sig. Framburður vitna varðandi það mál er ólíkur. Hnífurinn fannst aldrei en fyrir liggur að brotaþoli í málinu mætti með hnífinn á vettvang.
Þá þurfi að fjölskipa dóminn en Hæstiréttur gerði athugasemd við að aðeins einn dómari hefði dæmt í málinu í héraði.
Málið fari að öðru leyti óbreytt til aðalmeðferðar á nýju ári að sögn Helga Magnúsar. Ákærunni hafi ekki verið vísað frá og Árni Gils sæti ákæru fyrir tilraun til manndráps. Leggja þurfi meira í sönnunarfærsluna þegar málið verði tekið fyrir á nýjan leik.

Hjalti ræddi málin í Bítinu í morgun og reifaði málið eins og það blasir við honum. Á honum má merkja að Árni Gils eigi við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða. Þá sagði hann Árna hafa komið að líkamsárás fyrr sama dag og átökin í Breiðholti brutust út, sem leiddi til handtöku Árna og þess sem á eftir kom.
Hæstiréttur staðfesti dóm yfir Árna í tveimur öðrum brotum í gær er sneru að líkamsárás og broti gegn valdstjórninni. Árni hrækti á lögreglumann á lögreglustöð eftir handtöku. Fékk Árni Gils fjögurra mánaða dóm fyrir þann hluta í Hæstarétti í gær auk þess sem bætur til brotaþola í líkamsárásarmálinu voru hækkaðar í eina milljón króna.
Dóminn úr Hæstarétti má lesa hér.

Árni Gils var í 277 daga í gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. Það þýðir að hann var af lögreglu talinn líklegur til að brjóta af sér að nýju og hættulegur samfélaginu. Nú segir Hjalti á döfinni að höfða skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu vegna gæsluvarðhaldsins.
Fyrst þarf þó að leiða til lykta sakamál Árna sem enn sætir sömu ákæru fyrir tilraun til manndráps, þótt dómurinn í héraði hafi verið ómerktur. Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka málið til meðferðar á nýju ári.
Spjallið við Hjalta má heyra hér að neðan en þar segist hann líka stefna á að fá Arnold Schwarzenegger til landsins á næsta ári.