Markaðsstofum tryggt stóraukið fé í fjárlögum Sveinn Arnarsson skrifar 19. desember 2017 07:00 Markaðsstofurnar fá stóraukið fé. vísir/stefán „
Rekstrarfé til Markaðsstofanna verður 91 milljón en ekki 80 eins og stendur í fjárlagafrumvarpinu nú. Annað stóð aldrei til og markaðsstofum landshlutanna því tryggt þetta fjármagn,“ segir Elías Gíslason ferðamálastjóri. Fréttablaðið sagði frá því í gær að breyting hefði orðið í fjárlagafrumvarpi Bjarna Benediktssonar frá frumvarpi Benedikts Jóhannessonar á þá leið að fé til markaðsstofa landshlutanna í ferðaþjónustu færi úr 91 milljón niður í 80 milljónir. Ljóst er að þær breytingar eru ekki réttar og verður þessu kippt í liðinn fyrir aðra umræðu fjárlaga í þinginu. „Það sem meira er, að þarna er verið að semja til þriggja ára svo markaðsstofurnar eru að fá um 160 milljónir króna árlega frá okkur og hinu opinbera þannig að hér er um verulega aukningu að ræða. Það fara allir glaðir frá borði og rekstrargrundvöllur markaðsstofanna styrkist verulega frá því sem nú er,“ segir Elías. Markaðsstofur landshlutanna vinna náið með fyrirtækjum og sveitarfélögum í því að markaðssetja sín svæði sem ákjósanleg ferðaþjónustusvæði. Mikilvægt er að margra mati að auka veg ferðaþjónustunnar um allt land og dreifa ferðamönnum sem víðast til að nýta þær fjárfestingar sem til eru á landsbyggðinni til ferðaþjónustu. Því er hér um mikilvægt skref að ræða til að efla markaðsstofurnar enn frekar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira