Eitrun hamlar barnaferð Benedikt Bóas skrifar 27. apríl 2017 07:00 Allur kræklingur sem ræktaður er til sölu er mældur og vottaður öruggur til neyslu áður en hann fer í búðir.
Fyrirhugaðri kræklingaferð Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna í Hvalfjörð á laugardag hefur verið aflýst þar sem þörungaeitrun hefur mælst í kræklingnum í firðinum að undanförnu. Ferðin hefur verið afar vinsæl undanfarin ár þar sem almenningi gefst kostur á að fræðast um kræklinginn, tínslu hans og nýtingu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum. Matvælastofnun og Hafrannsóknastofnun vakta þörungaeitrun og er nú varað við neyslu á skelfiski úr Hvalfirði þar sem svonefnd DSP-eiturefni eru yfir viðmiðunarmörkum. Almenna þumalputtareglan þegar farið er í kræklingafjöru er að óhætt sé að tína kræklinginn í þeim mánuðum sem hafa „r“ í nafninu. Þetta er vegna þess að þörungablómi og eiturefni honum fylgjandi aukast yfir sumarmánuðina þegar hitastig sjávar hækkar. Þörungaeitrið hefur hins vegar verið viðvarandi í Hvalfirðinum í vetur sem er afar óvenjulegt. Rétt er að undirstrika að eiturefni hafa til dæmis ekki mælst í kræklingi í Breiðafirði síðustu mánuði. Jafnframt er allur kræklingur sem ræktaður er til sölu alltaf mældur og vottaður öruggur til neyslu áður en hann fer í verslanir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira