Trump eykur aftur hervæðingu lögreglunnar Samúel Karl Ólason skrifar 28. ágúst 2017 18:12 Lögregluþjónar að störfum í Ferguson árið 2014. Vísir/AFP
Ríkisstjórn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, mun í dag kynna áætlun um að fella niður takmarkanir Barack Obama, forvera Trump, á því hve mikið af hergögnum lögregluembætti í Bandaríkjunum geta fengið. Um er að ræða herbúnað sem herafli ríkisins notar ekki eins og brynvarða bíla og skriðdreka, sprengjuvörpur og ýmislegt fleira. Barack Obama takmarkaði hergagnagjafir til lögreglunnar eftir umdeilt atvik í Ferguson í Missouri árið 2014. Þar mætti mjög svo þungvopnuð lögregla mótmælendum á götum borgarinnar. Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, ræddi málið á fundi samtaka lögregluþjóna í Nashville í Tennessee í dag og sagði lögregluna vera að berjast á mörgum vígstöðvum. Ofbeldisglæpum og glæpagengjum hefði fjölgað, mikill fíkniefnavandi stæði yfir, hryðjuverkaógn og á sama tíma væru hefðbundin fjölskyldu- og menningargildi væru á undanhaldi. Sessions sagði það leiða til þess að virðing fyrir lögum og reglu hefði minnkað. „Forsetatilskipunin sem forsetinn mun skrifa undir í dag mun tryggja að þið fáið búnað sem bjarga mun lífum og ganga úr skugga um að þið getið unnið vinnuna ykkar. Í senn munið þið senda sterk skilaboð um að við munum ekki leyfa glæpastarfsemi, ofbeldi og lögleysu að verða okkur eðlislæg,“ sagði Sessions samkvæmt frétt CNN.Mannréttindasamtök í Bandaríkjunum hafa gagnrýnt stefnubreytinguna harðlega og segja takmarkanir Obama hafa hjálpað til við að auka traust á lögregluna í íbúðarhverfum litaðra. John Oliver fjallaði eftirminnilega um hervæðingu lögreglunnar árið 2014.
Bandaríkin Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira