Réttindi flugfarþega: „Fyrsta skrefið er að senda kröfu á flugfélagið“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. ágúst 2017 22:00 Íslenskur farþegi birti þessa mynd af sofandi fólki í flugstöðinni á Tenerife um helgina. Erna Karen Stefánsdóttir
Neytendastofa fær aukinn fjölda af kvörtunum tengdum töfum og aflýsingum á flugi. Þetta kom fram í viðtali við Ívar Halldórsson lögfræðing hjá Neytendasamtökunum í Reykjavík síðdegis fyrr í dag. „Hvort að það er út af því að það er alltaf stöðug aukning í flugsamgöngum eða hvað það veit maður ekki. En við finnum það bæði í erindum sem við fáum frá Neytendasamtökunum og þeim málum sem við fáum í gegnum Evrópsku neytendaaðstoðina sem við hýsum, að það er nokkur aukning á þessu sviði,“ segir Ívar.Réttindin fara eftir vegalengd „Vissulega er það hrikalegt þegar farþegar lenda í svona gífurlegum töfum. Það er í gildi Evrópureglugerð um réttindi flugfarþega sem að kveður í rauninni á um ýmis lágmarksréttindi sem að flugfarþegar eiga, þegar kemur að seinkunum um einhvern ákveðinn tíma eða aflýsingu.“ Ívar segir að reglugerðin sé nokkuð góð. Réttindi flugfarþegana snúa að aðstoð, endurgreiðslu og mögulegar skaðabætur. „Í reglugerðinni er flugum skipt í þrennt. Það fer í rauninni eftir vegalengd flugsins hvaða réttindi koma til skoðunar hverju sinni,“ útskýrir Ívar. Flokkarnir þrír eru flug sem eru 1500 kílómetrar og minna, flug sem eru 1500 til 3500 kílómetrar og svo flugin sem eru lengri en það. Fyrsta skrefið er að senda kröfu Eins og fjallað var um á Vísi í gær þurftu margir farþegar að dvelja í von og óvon á flugvöllum svo klukkustundum skiptir. Flugfélagið var harðlega gagnrýnt fyrir ítrekaðar seinkanir og lélega upplýsingagjöf. Ívar segir að tafir Primera Air um helgina falla undir slík réttindi. „Fyrsta skrefið er að senda kröfu á flugfélagið, fara fram á þessar bætur. Svo ef að flugfélagið hafnar eða eitthvað svoleiðis þá bara hvet ég farþega til þess að hafa samband við okkur hjá Neytendasamtökunum og við förum yfir málið með þeim.“ Þó að ferðin sé bókuð í gegnum ferðaskrifstofu þarf fólk að leita fyrst til flugfélagsins með sínar kröfur.Viðtalið má heyra í heild sinni hér að neðan:
Tengdar fréttir Primera Air: „Það er alltaf spurning hvað er nóg af upplýsingum“ Framkvæmdastjóri hjá Primera Air segir félagið vera með ferla sem eigi að tryggja upplýsingagjöf til farþega 20. ágúst 2017 12:27 Segir aukið upplýsingaflæði geta valdið ruglingi hjá farþegum Farþegar vélanna sem seinkuðu frá Tenerif, Alicante og Malaga, hafa gagnrýnt lélega upplýsingagjöf og segja að misvísandi upplýsingar hafi borist þeim frá ferðaskrifstofum Heimsferða og Úrval Útsýns. 21. ágúst 2017 10:45 Íslendingar lýsa martraðarhelgi Primera Air Fjölmargir Íslendingar hafa orðið strandaglópar svo klukkustundum skiptir um helgina eftir ítrekaðar seinkanir Primera Air. 20. ágúst 2017 10:30 Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira
Primera Air: „Það er alltaf spurning hvað er nóg af upplýsingum“ Framkvæmdastjóri hjá Primera Air segir félagið vera með ferla sem eigi að tryggja upplýsingagjöf til farþega 20. ágúst 2017 12:27
Segir aukið upplýsingaflæði geta valdið ruglingi hjá farþegum Farþegar vélanna sem seinkuðu frá Tenerif, Alicante og Malaga, hafa gagnrýnt lélega upplýsingagjöf og segja að misvísandi upplýsingar hafi borist þeim frá ferðaskrifstofum Heimsferða og Úrval Útsýns. 21. ágúst 2017 10:45
Íslendingar lýsa martraðarhelgi Primera Air Fjölmargir Íslendingar hafa orðið strandaglópar svo klukkustundum skiptir um helgina eftir ítrekaðar seinkanir Primera Air. 20. ágúst 2017 10:30