Stofn landsela hrunið úr 33 þúsund dýrum í 8000 Gissur Sigurðsson skrifar 15. júní 2017 13:16
Stofn landsela hefur hrunið úr 33 þúsund dýrum árið 1980 niður í 8000 dýr núna, eða um 80 prósent. Stofninn er nú langt innan við markmið stjórnvalda um stærð hans og verður að grípa til aðgerða honum til verndar að sögn vísindamanna. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun, hefur látið sig málefni landselsins varða. Hann segir að upphaflega fækkun hafi mátt rekja til beinna veiða mannsins en áður fyrr var greitt fyrir hvern sel. „Eftir að því var hætt þá hafa talningar sýnt að stofninn er áfram að minnka og er nú í einungis um 8000 dýrum. Skýringarnar á þessu eru í sjálfu sér ekki vel þekktar,“ segir Þorsteinn sem telur þó að fyrir þessu séu þrjár mögulegar skýringar. „Í fyrsta lagi vegna hugsanlegra breytinga á útbreiðslu fæðu. Það gæti þýtt að fæðuframboð er minna og því náttúrulega afföll í stofninum meiri. Svo er ekki heldur hægt að horfa fram hjá því að hjáveiðar, sérstaklega netaveiðar, geta haft töluverð áhrif. Auk þess sem skotveiðar eru stundaðar, sérstaklega í árósum, en upplýsingar um umfang þeirra veiða, sem og við hjáveiðar, ákaflega illa þekktar og mikill skortur á réttum tölum,“ reifar Þorsteinn. Hann segir að stjórnvöld hafi sett sér markmið árið 2006 sem kveða á um að stofninum sé reynt að halda í um 12 þúsund dýrum. Þá skildi einnig grípa til aðgerða færi stofninn undir þau mörk. „Nú er hann kominn undir þau mörk og við í okkar ráðgjöf erum að benda stjórnvöldum á að nú þurfum við að eiga samtal um aðgerðir til að draga úr þessari fækkun sem á sér staða og reyna að snúa þessari stofnþróun við.“
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Fleiri fréttir Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Sjá meira