Sigmundur Davíð þarf að flytja ef hann vill Reykjavík Snærós Sindradóttir skrifar 2. maí 2017 07:00 Sigmundur Davíð er búsettur í Garðabæ en er með lögheimili á Egilsstöðum. Vísir/Vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður er ekki kjörgengur í Reykjavík. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að áhrifafólk innan Framsóknarflokksins hvetti Sigmund nú til þess að leiða lista Framsóknarmanna í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Sigmundur er með lögheimili á Hrafnabjörgum 3 á Egilsstöðum. Hann hefur þó ekki raunverulega búsetu þar en færði lögheimili sitt þangað þegar til stóð að hann byði sig fram í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013. Sigmundur Davíð er oddviti Framsóknarflokksins í kjördæminu. Í frétt Fréttablaðsins í gær sagði Sigmundur að hann gerði ráð fyrir því að halda sig við landsmálin þrátt fyrir að málefni borgarinnar væru einnig áhugaverð og mikilvæg. „Það er ekkert launungarmál að málefni sveitarfélaganna og skipulagsmál skipa stóran sess í mínum huga, en þau eru líka nátengd landsmálunum og það er fjölmargt annað á sviði landsmálanna sem mér finnst mikil þörf á, og tækifæri til, að bæta,“ segir Sigmundur. Fari svo að Sigmundur færi lögheimili sitt aftur að heimili sínu er hann þó ekki heldur kjörgengur, þar sem hann er búsettur í Garðabæ. Í lögum um kosningar til sveitarstjórna segir að hver sá sé kjörgengur í sveitarstjórn sem hafi kosningarétt í sveitarfélaginu en það hefur Sigmundur ekki. Oddviti Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík núna er Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir. Í samtali við Fréttablaðið segist hún ekki vera búin að ákveða hvort hún gefi kost á sér aftur á lista. Hún ætli sér að taka ákvörðun um og eftir sumarið. Hið sama gildir um Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur, sem er í öðru sæti listans. Hún tekur ákvörðun með sumrinu. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Hátt settir Framsóknarmenn vilja tefla Sigmundi fram í borginni Alþekkt er að fyrrverandi forsætisráðherra hefur mikinn áhuga á skipulagsmálum og hefur verið gagnrýninn á þróun þeirra og framkvæmdir í miðborginni. 1. maí 2017 05:00 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira
Hátt settir Framsóknarmenn vilja tefla Sigmundi fram í borginni Alþekkt er að fyrrverandi forsætisráðherra hefur mikinn áhuga á skipulagsmálum og hefur verið gagnrýninn á þróun þeirra og framkvæmdir í miðborginni. 1. maí 2017 05:00