Innlent

Rússar eyðileggja vatnsbirgðir höfuðvígis ISIS

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mjög er nú þrengt að ISIS.
Mjög er nú þrengt að ISIS. Vísir/Getty
Loftárásir Rússa á Raqqa, höfuðvígi ISIS í Sýrlandi, undanfarna daga hafa gert það að verkum að skortur er á vatni í borginni. Svo virðist sem að vatnsdælustöð borgarinnar hafi eyðilagst í loftárásunum.

Rússar hafa gert miklar loftárásir á borgina á undanförnum dögum og eru um 30 látnir vegna þeirra. Rússar segja að skotmörk loftárásanna hafi verið vopnageymsla, efnavopnaverksmiðja og æfingarbúðir fyrir liðsmenn ISIS. Í yfirlýsingu frá rússneska varnarmálaráðuneytinu sagði að miklar skemmdir hafi orðið í borginni vegna árásanna.

Ekkert vatn rennur því nú í borginni og í grennd við hana en mjög er nú þrengt að ISIS og yfirráðarsvæði hryðjuverkasamtakanna. Sótt er að ISIS úr öllum áttum en sýrlenski stjórnarherinn, með stuðningi Rússa, og uppreisnarmenn, með stuðningi Bandaríkjanna og bandalagi þeirra hafa gert miklar árásir á ISIS undanfarna mánuði.

Talið er að á bilinu 250 til 500 þúsund íbúar búi í Raqqa sem jafnan er nefnd höfuðborg ISIS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×