Stafalogn og gnótt vatns afstýrði altjóni Jóhann Óli Eiðsson skrifar 22. nóvember 2016 06:45 vísir/gva
Stórtjón varð þegar hluti fiskþurrkunar að Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi brann til kaldra kola í gær. Góð veðurskilyrði björguðu því að ekki fór verr. „Slökkvistarf gekk mjög vel. Við náðum að verja tengibyggingu sem tengdi saman gamla og nýja húsið og því slapp hið nýrra,“ segir Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð. Blankalogn var á svæðinu auk þess sem unnt var að stífla læk á staðnum og brúka vatn úr honum til slökkvistarfs. Þá var beltagrafa á svæðinu sem notuð var til að brjóta mönnum leið inn í húsið. Ríflega fjörutíu manns komu að slökkvistarfinu. Þeir sem komu lengst að voru frá Suðurnesjum. „Þeir komu hingað með svokallaðan loftbanka sem gerði það að verkum að hægt var að fylla á kúta reykkafaranna strax. Það bjargaði miklu,“ segir Bjarni. Húsið sem brann er gjörónýtt. Það hýsti alla þurrkunarklefa og stóran hluta vinnslunnar. Leiða má líkur að því að kviknað hafi í austurenda hússins þar sem sá vestari var heillegri. Eldsupptök eru ekki ljós. „Þetta eru eflaust einhver hundruð milljóna sem töpuðust þarna,“ segir Sigurður Hreinsson, eigandi þurrkunarinnar. Með húsinu fuðraði þrjátíu ára ævistarf hans upp auk þess sem á þriðja tug manna hafa atvinnu af þurrkuninni. Vörubílstjóri varð eldsins fyrst var síðla nætur. Sigurður segir að slökkviliðið hafi verið fljótt á staðinn þó að hann hafi upplifað biðina sem heila eilífð. Á meðan horfði hann á eldinn magnast. „Eldurinn hafði kraumað í einhvern tíma áður en hann blossaði upp um alla verksmiðju. Þá kviknaði í reyknum. Það var eins og fleiri þúsund lítrum af olíu hefði skyndilega verið sturtað yfir allt,“ segir Sigurður. Hann er slökkviliðsmönnunum þakklátur fyrir að ekki fór verr. „Hér var stafalogn og mennirnir stóðu sig eins og hetjur. Það er hálf ótrúlegt að í sitthvorum enda hússins sem fór standa skúrar, annar með inntakinu fyrir heita vatnið og hinn fyrir rafmagnið. Það tókst að verja þá báða. Það var lán í þessari ömurlegu ógæfu.“ „Enginn dó. Það brunnu aðeins hlutir sem hægt er að byggja upp aftur,“ segir Sigurður að lokum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir „Gríðarlegt tjón sem þetta blessaða fólk hefur orðið fyrir“ Hafa náð tökum á eldinum. 21. nóvember 2016 10:06 Mest lesið Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum Innlent Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Innlent Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Innlent Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Innlent Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst Innlent „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Innlent Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Alvarlegt hversu mörg börn skorti samkennd Innlent Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Innlent Fleiri fréttir Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði „Starfsemi sem þarf auðvitað bara að stoppa" Ekkjan, fjársvikahrina og ferðamenn sem hunsa lokanir Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Nú má heita Snjókaldur en ekki Latína „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Fjárhús varð öldugangi að bráð Sveinn nýr formaður stjórnar Landspítalans Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst Fresta byggingu annarrar heilsugæslu um fimm ár hið minnsta Afsökunarbeiðni Sigríðar Bjarkar skipti sköpum Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum „Stórsigur fyrir réttlæti“ Þýskur herforingi í heimsókn á Íslandi Mannekla hjá lögreglu engin afsökun fyrir fyrningu mála Skoða hvort hægt sé að beita Ísrael refsiaðgerðum Gufunesmálið, Mannréttindadómstóll Evrópu og Sjálfstæðisflokkur stærstur í borginni Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Sjálfstæðisflokkurinn aftur orðinn stærstur í borginni Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Metaregn í hlýindum á Íslandi Miklir vatnavextir og Fjallabak illfært flestum bílum Alvarlegt hversu mörg börn skorti samkennd Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Skjálfti við Húsavík Byssan reyndist leikfang Sjá meira
„Gríðarlegt tjón sem þetta blessaða fólk hefur orðið fyrir“ Hafa náð tökum á eldinum. 21. nóvember 2016 10:06