"Þurfum að velta fyrir okkur hvort þessi aðferðafræði sé réttust“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. janúar 2016 12:11 „
Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál fyrir þessar greinar í landinu. Ég hef sagt að það sé eðlilegt að við veltum þessu fyrir okkur og skoðum heildarhagsmuni. Það er enginn, og ekki heldur ég, sem telur að við eigum ekki að mótmæla með einum eða öðrum hætti framferði Rússa í Úkraínu. Við þurfum að láta alþjóðalög gilda og við höfum verið í samfloti með NATO og öðrum vestrænum ríkjum um að gera það. Það má hins vegar velta fyrir sér hvort að þessi aðferðafræði sé árangursrík, skynsamleg og hvernig hún kemur svo við einstök lönd, einstakar greinar og einstök byggðalög. Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þeir Sigurjón M. Egilsson viðskiptabann Rússa á íslenskar sjávar- og landbúnaðarafurðir en Sigurður segir enga hafa fórnað eins miklu og Íslendingar í aðgerðunum. Þrátt fyrir það segir hann viðskiptaþvinganir vestrænna ríkja gegn Rússum vart eiga við um Íslendinga, enda sé aðkoma okkar táknræn. „Þetta bann sem við erum aðilar að það snýr að því að við tökum ekki þátt í vopnasölu. Það kemur auðvitað Íslendingum ekkert við og það er einhver hópur manna sem má ekki eiga bankainnistæður. Það er enginn sem á slíkt hér á landi þannig að við erum auðvitað bara með táknrænan stuðning við samfélag vestrænna þjóða í þessu.“ Aðspurður vill hann þó ekki taka svo djúpt í árinni að Íslendingar ættu að bakka út úr þessum aðgerðum. „Ég er efins á að viðskiptaþvinganir „per se“ séu skynsamlegar og ég get nú bara minnst á Kúbu. Það hefur verið rætt um það að þær séu til þess að koma í veg fyrir styrjöld. Ég man ekki til þess að það hafi verið nein styrjöld milli Bandaríkjanna og Kúbu í 46 ár. Það stefndi í það á einhverjum tíma, svo voru settar á viðskiptaþvinganir og við hverja komu þær verst? Jú, þær komu auðvitað bara verst á þessi tvö ríki og viðskiptin milli þeirra en verst þó á almenninginn í landinu. Það eru auðvitað uppi sjónarmið um að það sama sé að gerast í Rússlandi,“ segir Sigurður Ingi. „Ég vil segja; annars vegar þurfum við auðvitað að vera með skýra stefnu um að við stöndum með okkar þjóðum í hinu vestræna samfélagi. Hins vegar þurfum við að velta fyrir okkur hvort þessi aðferðarfræði réttust. Hvernig kemur hún við okkur? Hvernig eigum við að bregðast við? Þá getum við horft á svona undarlegar útgáfur af þessu. Hann spyr sig hvort þessar aðgerðir leggist með einhverjum hætti óvenjulega þungt á Íslendinga í ljósi smæðar landsins og hagkerfisins í samanburði við önnur ríki. „Ég er alveg sammála því að heildarupphæðin í samhengi allra útflutningstekna þjóðarinnar eru ekki eitthvað sem hægt er að stíga yfir af því að útgerðin er sterk. Hins vegar kemur þetta gríðarlega misjafnt niður á annars vegar fyrirtækjum en ekki síst á sveitarfélögunum og fólki í landi,“ segir Sigurður. Hann segist hafa rætt málin við kollega sinn, Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra, og spurt hvort ekki séu aðrar leiðir færar. Sigurður segir að bregðast verði við með óhefðbundnum hætti til að koma fólkinu í landi til bjargar, haldi þvinganir Rússa áfram. Spjall þeirra Sigurðar og Sigurjóns má heyra í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira