Fimmtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás með byssuskefti Samúel Karl Ólason skrifar 24. nóvember 2016 16:51 Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest dómsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að dæma karlmann í 15 mánaða fangelsi vegna sérstaklega hættulegrar líkamsárásar. Maðurinn barði annan mann ítrekað í höfuð og líkama með riffli og sjónauka. Fórnarlambið hlaut tvíbrot í neðri kjálka, skurð á vinstri hlið höfuðs og mar um bak og síður. Báðir mennirnir segjast lítið sem ekkert muna frá atvikinu sem gerðist í sumarbústað í júní 2012. Tólf mánuðir af fimmtán eru skilorðsbundnir til tveggja ára. Við ákvörðun refsingarinnar var litið til þess að árásin var sérstaklega hættuleg, en einnig var horft til þess að sá dæmdi hafði ekki áður hlotið refsidóm og að dómurinn var búinn að dragast á langinn. Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að mennirnir hafi setið að drykkju og farið í sjómann. Hvorugur man eftir atvikinu en sá dæmdi kallaði lögregluna til og sagðist hann vera miður sín yfir því að hafa barið mann sem væri á gólfinu. Hann fór að gráta og sagðist telja að fórnarlambið væri látið. Hann sagði lögreglu að hann hefði hugsanlega barið brotaþola með sjónauka af byssu sinni. Sjónauki sem maðurinn var barinn með fannst á gólfinu við hliðina á honum, en lögreglan fann riffilinn, brotinn og blóðugan, undir púðum í sófa. Í úrskurði Héraðsdóms Suðurlands kemur fram að ljóst sé að fórnarlambið hafi ekki verið með umrædda áverka áður en hann kom í bústaðinn, en hann og sambýliskona hans voru í bústað nærri þeim sem sá dæmdi var í. Þá sögðust allir málsaðilar ekki hafa orðið varir við mannaferðir um kvöldið. Þá báru áverkar á höndum fórnarlambsins þess merki að hann hafi borið hönd fyrir höfuð sér. Þar að auki gefi myndir af vettvangi í skyn að ekki hafi komið til átaka í bústaðnum og þess í stað hafi fórnarlambið orðið fyrir árás. Einu áverkar mannsins sem var dæmdur voru bólgur á hægri hendi. Maðurinn hafi einnig hringt í lögreglu og sagst hafa barið mann. Með tilliti til þessara atriða og annarra þótti dómnum yfir skynsamlegan vafa hafið að sá dæmdi hafi gerst sekur um líkamsárásina sem hann var ákærður fyrir. Maðurinn var, auk fangelsisvistar, dæmdur til að greiða fórnarlambinu rúma milljón króna og 866 þúsund króna í sakarkostnað. Dóm Hæstaréttar sem og dóm Héraðsdóms Suðurlands má sjá hér.
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Fleiri fréttir Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Sjá meira