Moses loksins kominn til fyrirheitna landsins eftir langa eyðimerkurgöngu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. nóvember 2016 07:00 Victor Moses var gleymdur og grafinn í upphafi tímabils en er nú ómissandi hluti af toppliði Chelsea. Hann var frábær í stórleik helgarinnar og tryggði Chelsea afar mikilvægan sigur gegn Tottenham á laugardaginn. vísir/getty
Hinn 25 ára gamli Victor Moses skaut Chelsea á topp ensku Úrvalsdeildarinnar um helgina þegar hann skoraði sigurmarkið í stórleik helgarinnar gegn Tottenham. Fátt virðist geta stoppað sigurgöngu Chelsea sem hófst þegar Antonio Conte skipti yfir í 3-4-3. Þar leikur Moses lykilhlutverk sem hægri vængbakvörður. Hann vakti snemma athygli en líkt og margir knattspyrnumenn sem ganga til liðs við stórlið á unga aldri hefur hann átt erfitt uppdráttar. Þangað til nú.Afdrifaríkt klúður Moses var ein af vonarstjörnum enska boltans þegar hann kom fram á sjónarsviðið hjá Crystal Palace árið 2007, aðeins 16 ára gamall. Margir leikmenn á hans aldri brenna sig á því að ganga of snemma til liðs við stóru félögin þar sem þeir verða undir í samkeppni við dýrari og hæfileikaríkari leikmenn. Moses virtist því stíga rétt skref þegar hann gekk til liðs við Wigan árið 2010. Þar fékk hann sín fyrstu tækifæri í Úrvalsdeildinni og nýtti þau vel, svo vel að árið 2012 keypti Chelsea hann eftir mikinn eltingarleik. Fyrsta tímabilið gekk vel en eftir að José Mourinho tók við Chelsea 2013 var Moses sendur á láni til Liverpool, Stoke og West Ham án árangurs. Var hann helst þekktur fyrir að vera maðurinn sem mistókst að tryggja Liverpool sigurinn á lokamínútunum í afdrifaríku 3-3 jafntefli liðsins gegn Crystal Palace sem margir telja að hafa kostað Liverpool titilinn árið 2014.Antonio Conte ber tilfinningar sínar á borð.vísir/gettyGleymdur og grafinn Það var því allt eins líklegt að Moses myndi hverfa í eilífðina sem einn af þessum ungu leikmönnum sem lofa góðu en lítið verður úr. Fátt gaf til kynna að það myndi breytast með komu Antonio Conte til Chelsea en í fyrstu fimm leikjum tímabilsins fékk Moses afar takmarkaðan spilatíma. Eftir að liðið brotlenti illa gegn Liverpool og Arsenal í upphafi tímabils þurfti Conte hins vegar að bregðast við til að snúa genginu við. Svar hans var að leita aftur á náðir 3-4-3 leikkerfisins sem Conte nýtti óspart með Juventus og Ítalíu. Þar kom Moses inn í hægri vængbakvarðarstöðuna. Það er ekki fyrir hvern sem er að leysa slíka stöðu enda þarf sá hinn sami að vera í gríðarlegu formi til þess að geta sinnt varnar- og sóknarhlutverkinu sem fylgir því að sjá einn um annan kantinn. Moses virðist smellpassa í þetta hlutverk. Sem sóknarsinnaður kantmaður að upplagi nýtast kraftar hans vel á fram á við. Sigurmarkið gegn Tottenham var fjórða mark hans á tímabilinu og aðeins helstu stjörnur Chelsea, Eden Hazard og Diego Costa, hafa skorað fleiri mörk á tímabilinu. Skiptingin í 3-4-3 hefur umbreytt leik Chelsea og galdrað fram það besta í Hazard og Costa. Sjö leikja sigurhrina Chelsea hefur skotið þeim á toppinn og allt þetta væri vart mögulegt án Moses og Marcos Alonso í vængbakvarðarstöðunum. Þeir losa um sköpunargáfu Hazard, Pedro og Costa í framlínustöðunni með því að frelsa þá undan varnarskyldum sínum en styðja jafnframt við bakið á sóknarleiknum líkt og markaskorun Moses gefur til kynna. „Moses býr yfir miklum hæfileikum, hann er tæknilega góður, nautsterkur og getur séð um 70 metra á vellinum einn síns liðs,“ sagði Conte eftir sigur Chelsea gegn Middlesbrough um þar síðustu helgi þar sem Moses var valinn maður leiksins. „Það er kostulegt að leikmaður eins og hann hafi verið svona vanmetinn.“Moses hefur blómstrað í stöðu vængbakvarðar.vísir/gettyMeð Conte í eyranu Agi hans og vinnusemi bætir einnig upp það sem á vantar í varnarleiknum, fáir leikmenn Chelsea hlaupa jafn mikið og Moses í hverjum leik auk þess sem það hjálpar að hafa vélar á borð við Nemanja Matic, N’Golo Kanté og Cesar Azpilicueta sér við hlið. Þar að auki fer mikill hluti af leik Moses fram við hliðarlínuna og í minnst 45 mínútur í hverjum leik hefur hann Conte í eyranu gargandi leiðbeiningar á sig. „Ég er búinn að finna heimili mitt,“ sagði Moses eftir leikinn gegn Tottenham eftir að hafa verið valinn maður leiksins, annan leikinn í röð. „Stjórinn gaf mér tækifæri til þess að tjá mig og ég nýt þess í botn. Ég vil bara fá að spila fótbolta og njóta mín þegar ég er úti á vellinum.“ Eftir strembin ár virðist Moses því loksins vera kominn á fast land. Sjálfur virðist hann bara ætla að njóta augnabliksins, loksins orðinn lykilmaður í hungruðu liði Chelsea sem stefnir hraðbyri að titlinum.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Fótbolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira