Allt iðandi af mús í Öndverðarnesinu Jakob Bjarnar skrifar 14. nóvember 2016 16:16 Ester Rut segir músastofninn er nú í hámarki. Víða er krökkt og mýsnar gætu tekið uppá því að hrella mann og annan á næstunni. „
Hér er allt iðandi,“ segir Magnús Sigurðsson múrari og sumarbústaðaeigandi í Öndverðarnesi. Sá hefur verið þar um slóðir í ein 24 ár og hefur aldrei séð annað eins af mús. „Við erum með gildrur undir bústaðnum, sem við fáum hjá meindýraeyði hér í sveitinni. En, þrátt fyrir það sér ekki högg á vatni. Nú eru þær svo kræfar og margar, þó þetta sé til staðar, að í dag þá dönsuðu þær á pallinum hjá mér.“Nú þegar kólnar leitar músin í húsin Ester Rut Unnsteinsdóttir er spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir í samtali við Vísi að blaðamaður sé ekki sá fyrsti sem hringi vegna músa. „Það eru náttúrlega mjög margir sem verða varir við mýs núna. Það er þannig tíma,“ segir Ester Rut að því gefnu að verið sé að tala um hagamýs. Hún bendir á að það hafi verið gott sumar, afar hlýtt haust. Hún þekki ekki til hvernig háttar í Öndverðarnesinu.Ester Rut hjá Náttúrufræðistofnun segir mikið af músum nú um stundir.visir/vilhelm„Ég veit ekki hvernig gróðurfar er á því svæði. Enn er mikið eftir af sumarstofninum en mýs eignast bara afkvæmi á sumrin. Stofninn lítill að vori og stór að hausti. Miðað við hversu milt haust þetta hefur verið er ekkert farið að ganga á. Er rétt að byrja að kólna núna og þá menn verða meira varir við þetta, þegar þær leita sér skjóls.“Músin dugleg Ester Rut var á Skógum fyrir um hálfum mánuði, einmitt að veiða mýs til að gera lítilsháttar stofnmat og það veiddist ágætlega. „Svo sér maður þegar maður er að keyra þegar hleypur yfir veginn. Ég keyrði vestur yfir firði og það var mikið af músum að hlaupa yfir veginn. Það er á haustin sem maður sér mikið af þeim.“ Ekki er annað að heyra en Ester Rut hafi dálæti á músinni. Hún vill nú ekki taka svo sterkt til orða, segist ekki vilja hafa þær heima hjá sér. „En, já, þetta eru skemmtileg dýr og hafa verið hér frá tíð víkinganna og hafa orðið íslenskari en margt annað íslenskt. Aðdáunarvert hvernig þeim hefur tekist að lifa af í þessu trjálausa landi í gegnum aldirnar,“ segir Ester Rut en á ensku heitir hagamúsin skógarmús eða Wood mouse.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Sjá meira