Copa America og Sumarmessan á Stöð 2 Sport Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. maí 2016 11:00 Chile vann Copa America á heimavelli í fyrra. vísir/getty
365 hefur tryggt sér sýningarréttinn á Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu, Copa America, og mun sýna frá leikjum keppninnar í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. „Við erum hæstánægð að geta boðið áhorfendum okkar áfram upp á úrvalsíþróttaefni í allt sumar,“ segir Ágúst Héðinsson, forstöðumaður íþróttasviðs 365. „Copa America fagnar 100 ára afmæli í ár og er því sérstök hátíðarútgáfa af keppninni haldin í Bandaríkjunum í ár. Óhætt er að fullyrða að keppnin verður hin glæsilegasta enda mæta þar til leiks mörg af allra sterkustu landsliðum heims.“ Ásamt því að sýna leiki keppninnar í beinni útsendingu verður farið yfir hvern keppnisdag í Sumarmessunni, sem verður á dagskrá öll kvöld klukkan 22.00. Ásamt því að fara yfir leikina í Copa America verður farið yfir það helsta frá EM í Frakklandi, mörkin skoðuð og helstu atvik rædd ásamt stærstu íþróttafréttum dagsins. Sumarmessunni verður stýrt af öflugu starfsliði íþróttadeildar 365. Copa America hefst 3. júní en alls taka sextán lið þátt í keppninni í þetta sinn, fleiri en nokkru sinni fyrr. Auk beinna útsendinga frá Copa America verður nóg um að vera á Stöð 2 Sport í sumar en fyrst ber að nefna að metfjöldi útsendinga verður frá leikjum Pepsi-deildar karla, Pepsi-deildar kvenna og Inkasso-deildinni. Úrslitakeppni NBA-deildarinnar verður á sínum stað, sem og UFC og Formúla 1. Sýnt verður frá stærsta tennismóti heims, Wimbledon-mótinu, auk þess sem að skærustu frjálsíþróttastjörnur heims verða í eldlínunni í Demantamótaröðinni.
Fótbolti Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Fleiri fréttir Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt Sjá meira