Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. ágúst 2026 16:30 Fyrirliði ÍBV sneri aftur úr meiðslum í kvöld en skoraði sjálfsmark sem reyndist sigurmark leiksins fyrir Þrótt. vísir Þróttur sótti þrjú stig til Vestmannaeyja með 1-2 sigri gegn ÍBV í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Sterk byrjun Þróttara skilaði sigrinum en Eyjakonur voru nálægt því að jafna leikinn undir lokin. Með sigrinum fer Þróttur upp í 6. sæti deildarinnar, efri hlutann (en það gæti breyst ef Þór/KA vinnur Val.) ÍBV er áfram í 4. sæti deildarinnar, með 24 stig, þremur meira en Þróttur. Þróttur sýndi mikla yfirburði framan af leik og það var í raun ekki fyrr en undir lokin sem ÍBV ógnaði eitthvað almennilega. Fyrri hálfleikurinn var algjörlega í eigu gestanna, fyrir utan eina hættulega skyndisókn hjá ÍBV sem Allison Patricia Clark nýtti illa í eigingirni, og Þróttur tók forystuna eftir rúmar tuttugu mínútur. Björg braut ísinn Björg Gunnlaugsdóttir skoraði fyrsta markið á 21. mínútu en þar var hún rétt kona á réttum stað og fylgdi eftir skoti sem Mollee Swift varði vel frá Kaylu Robbins. Ekki góð endurkoma hjá Avery Fyrirliði ÍBV, Avery Mae Vanderven, sneri aftur úr meiðslum í kvöld en varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 28. mínútu, þegar hún fékk boltann í sig eftir hornspyrnu Sæunnar Björnsdóttur hjá Þrótti. Markmaðurinn Mollee Swift missti boltann úr höndum sér í horninu og hefði átt að gera betur. Þróttarkonur héldu áfram að ógna og fengu frábært færi til að taka þriggja marka forystu, í lokasókn fyrri hálfleiks en skalli Kaylu Rollins fór rétt framhjá markinu. Þriðja markið lá í loftinu Seinni hálfleikur fór rólega af stað og allar sóknir enduðu með rangstöðu á furðulega löngum kafla. En um miðjan seinni hálfleik gerðu bæði lið breytingar og hleyptu lífi í leikinn. Varamenn komu inn af krafti og þriðja markið lá í loftinu. Það var svo Milena Mihaela Patru sem náði að minnka muninn fyrir ÍBV á 80. mínútu, með sínu fyrsta marki fyrir félagið. Patru var grimm í teignum og réðst á lausan bolta eftir hornspyrnuklafs. Olga Sevcova komst nálægt því að jafna leikinn skömmu síðar en skot hennar var varið. Þrótturinn var á þrotum hjá liði ÍBV og Þróttur náði að sigla með þrjú stig úr Vestmannaeyjum. Besta deild kvenna ÍBV Þróttur Reykjavík Íslenski boltinn