Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Þorsteinn Hjálmsson skrifar 21. ágúst 2026 17:15 Víkingsstelpurnar fagna mikið eftir sigurmarkið. Vísir/pawel Víkingar unnu í kvöld gífurlega mikilvægan sigur gegn FH í Kaplakrika, en liðið er í harðri fallbaráttu. Fyrsti sigur Víkinga síðan í lok maí og FH að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Víkingar byrjuðu leikinn mjög vel og fengu tvö ákjósanleg marktækifæri á fyrstu tveimur mínútum leiksins. FH tók þó fljótlega öll völd á vellinum og áttu hverja sóknina á fætur annarri þar sem Víkingar þurftu að verjast fimlega. Gestirnir höfðu komist lítt áleiðis sóknarlega fyrr en kom að 22. mínútu leiksins. Sókn upp vinstri kantinn skilaði af sér fyrirgjöf inn á teiginn frá Örnu Ísold Stefánsdóttur. Endaði boltinn inn á miðjum teignum þar sem Bergdís Sveinsdóttir var ein og óvölduð og náði hún föstu skoti á markið sem endaði í netinu. Gestirnir úr Víkinni komnir yfir. Fram að hálfleik hélt FH áfram að sækja og sækja og fékk liðið nokkrar góðar stöður sem runnu þó út í sandinn. Víkingar fengu þó besta færið í fyrri hálfleiknum eftir markið, þegar Jasmín Erla Ingadóttir kom sér inn fyrir vörn FH og kom boltanum yfir Steinunni Ernu Birkisdóttur í markinu en boltinn hreinsaður af marklínunni. Staðan 0-1 fyrir Víking í hálfleik. Leikmyndin í síðari hálfleik var líkt og FH-ingar hafi hneppt Víkinga í gíslingu í sínum eigin vítateig, var sóknarþungi heimakvenna þess eðlis. Skall hver sókn FH á vörn Víkinga líkt og brim á skeri, en á þessu skeri var klettur, Telma Ívarsdóttir, sem varði hvert skotið á fætur öðru. Öldurnar lægðu þó eftir rúmlega klukkustundar leik og Víkingar náðu nokkrum sóknum og héldu örlítið í boltann. Ekki leið þó að löngu að sóknum FH fór aftur fjölgandi, þrátt fyrir að angistin hafi aukist og aukist enn frekar í leik heimakvenna. Það var þó á 87. mínútu sem heimakonur fengu stóra tækifærið. Vítaspyrna dæmd á markaskorara leiksins, Bergdísi, fyrir glæfralega rennitæklingu og steig Ásdís Karen Halldórsdóttir á punktinn. Telma gerði sér þó lítið fyrir í markinu og varði vítið á ögurstundu. Var þetta síðasta tækifæri FH í leiknum og sigurinn því Víkinga. Atvik leiksins Vítaspyrnan undir lok leiksins. Risa augnablik sem Telma tók sviðsljósið í. Vel varin spyrna og í raun las Telma hana Ásdísi Karen eins og opna bók. Stjörnur og skúrkar Telma Ívarsdóttir er ástæða þess að Víkingar náðu í sín fyrstu þrjú stig síðan í lok maí. Ótrúleg frammistaða í kvöld sem hún kórónaði undir lokin. Baráttuandinn í Víkings liðinu fær einnig prik. Ótrúlega verðmætt fyrir lið sem heygir harða baráttu á botni deildarinnar. FH stóð sig í raun mjög vel í leiknum, það vantaði þó upp á bitið í liðinu. Ef hægt er að tala um drápseðli í fótbolta þá skorti það í kvöld hjá heimakonum sem stýrðu leiknum frá A til Ö. Dómarar Ásmundur Þór Sveinsson flottur í kvöld. Hárréttur dómur að dæma þetta víti undir lokinn. Lét leikinn fljóta vel og leyfði allskonar pústra. Stemning og umgjörð Víkingarnir sem mættu á þennan leik voru hæst ánægðir í stúkunni að leikslokum á meðan FH-ingar pirruðu sig gríðarlega á getuleysi liðs síns fyrir framan markið. Flott umgjörð hjá FH í kringum þennan leik. Guðni var ekki sáttur við úrslitin.vísir/pawel Guðni Eiríksson: „Þá er bara enn þá meira að gera fyrir þjálfarana“ „Það skiptir engu máli hvaða þætti fótboltans maður er ofan á í, ef maður er ekki ofan á í fjölda marka,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, beint eftir tapið gegn Víkingum. „Við spiluðum leikinn bara vel á löngum köflum. Vorum ofan á fannst mér alls staðar nema í markaskorun. Þegar maður skorar ekki mörk þá vinnur maður ekki leiki og ef maður fær á sig mörk þá tapar maður leikjum. Við þurfum bara að sætta okkur við það að við töpuðum leiknum í dag og við töpuðum leiknum því við skoruðum ekki mark. Við töpuðum honum ekki í baráttu eða í fjölda sendinga eða í einvígjum inn á vellinum eða í því að halda bolta. Við vissum að tölfræðin væri öll með okkur þar, en við töpum í markaskorun,“ sagði Guðni þegar hann fór yfir leikinn. FH hefur nú tapað tveimur leikjum í röð sem ekki hefur gerst áður á tímabilinu. Guðni segir það kalla á meiri vinnu frá þjálfarateyminu. „Eins og alltaf í fótbolta þá tekst maður á við velgengni og svo þarf að takast á við tapleiki og díla við það. Fótbolti er þannig íþrótt að þú tapar og gerir jafntefli. Tveir tapleikir í röð og það er alveg hárrétt að það er óvanalegt, við höfum ekki gert það hingað til í sumar. Þannig að það er ný staða og það er þá bara enn þá meira að gera fyrir þjálfarana að finna út úr því.“ Guðni gerði fimm breytingar á byrjunarliði sínu fyrir þennan leik frá síðasta leik, en liðið er að fara í Evrópuleik í komandi viku sem Guðni var að hvíla leikmenn fyrir. Guðni segir þessar breytingar ekki hafa haft áhrif á leik liðsins, aðeins hafi vantað upp á að skora mörk. „Nei. Ég þarf líka að horfa á leikinn aftur enn bara svona tilfinningin á hliðarlínunni var sú að við værum með leikinn algjörlega í okkar höndum. Mér fannst við vera ofan á á öllum sviðum fótboltans, nema að koma boltanum í netið. Svo má vel vera að ég sé bara að tala með rassgatinu á mér.“ Guðni fór að lokum yfir þá tímapunkta í leiknum sem FH hefði þurft að koma inn marki og jós auk þess Víking hrósi. „Mörk breyta leikjum. Þegar við nýtum ekki kaflann strax í fyrri hálfleik og Víkingarnir fá tvö flott færi bara strax í byrjun leiks, síðan tökum við leikinn algjörlega yfir. Nýtum ekki þann kafla og svo fáum við mark á okkur og þá styrkjast Víkingarnir, eðlilega. Lið sem er í fallæti og fer inn í leikinn í neðsta sæti, það brotnar ef það fær á sig einhver mörk en mörkin koma ekki og þeir styrkjast og nutu þess að verjast til leiksloka. Vel gert hjá Víkingum.“ Besta deild kvenna FH Víkingur Reykjavík