Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Orri fékk sín tækifæri í kvöld en upp gekk það ekki.
Orri fékk sín tækifæri í kvöld en upp gekk það ekki. Vísir/getty/ Fran Santiago

Orri Steinn Óskarsson lék allan leikinn fyrir Real Sociedad þegar liðið tapaði 1-0 gegn Real Betis í fyrsta leik sínum á nýju tímabili í spænsku La Liga.

Orri var í byrjunarliði Real Sociedad og lék sem fremsti maður. Hann spilaði allar 90 mínúturnar en tókst ekki að finna netið í fyrsta deildarleik sínum á tímabilinu.

Betis skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu. Rodrigo Riquelme kláraði þá sókn eftir undirbúning Cucho Hernández og tryggði heimamönnum þrjú stig.

Real Sociedad var þó nálægt því að jafna undir lokin. Orri fékk meðal annars gott tækifæri til að skora en náði ekki að nýta það og Betis hélt hreinu allt til leiksloka.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira