Harry Kane búinn að ná Jamie Vardy Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2016 13:45 Harry Kane og Jamie Vardy í leik með enska landsliðinu. Vísir/Getty
Harry Kane skoraði bæði mörk Tottenham í 2-0 sigri á Aston Villa í gær og er þar með búinn að ná landa sínum Jamie Vardy í toppsæti listans yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar. Harry Kane og Jamie Vardy hafa nú báðir skoraði 19 mörk á þessu tímabili en báðir hafa þeir spilað 29 leiki fyrir lið sín. Tottenham og Leicester eru einmitt tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar í dag og þar hafa þessir tveir markaskorar skilað mörgum stigum til sinna liða. Jamie Vardy var með mjög gott forskot á Tottenham-leikmanninn en það hefur breyst á síðustu mánuðum enda fann Harry Kane markaskóna sína á nýjan leik. Harry Kane skoraði aðeins eitt mark í fyrstu níu umferðunum og var þá þegar orðinn átta mörkum á eftir Vardy. Kane skoraði þrennu í 5-1 sigri á Bournemouth og skoraði síðan 4 mörk í næstu þremur leikjum á eftir. Þá munaði bara fimm mörkum á þeim félögum (13-8). Um áramótin munaði fjórum mörkum á köppunum, Jamie Vardy var þá með 15 mörk en Kane hafði skorað 11 mörk. Jamie Vardy hefur hinsvegar "aðeins" náð að bæta við fjórum mörkum á árinu 2016 og á sama tíma hefur Harry Kane skorað tvöfalt meira en Vardy. Harry Kane vantar nú bara tvö mörk til að jafna árangur sinn í fyrra þegar hann skoraði 21 mark og varð annar markahæsti maður ensku úrvalsdeildarinnar á eftir Sergio Agüero hjá Manchester City (26 mörk). Harry Kane og Jamie Vardy munu ekki aðeins berjast um gullskóinn í ensku úrvalsdeildinni heldur eru þeir einnig í keppni um sæti í byrjunarliði enska landsliðsins á EM í Frakklandi. Það eru líka fleiri með í baráttunni, Romelu Lukaku hjá Everton er bara einu marki á eftir þeim og það eru bara þrjú mörk í Sergio Agüero hjá Manchester City. Jamie Vardy hefur ekki skorað í síðustu þremur leikjum Leicester en getur bætt úr því á móti Newcastle í kvöld.Markahæstu menn ensku úrvalsdeildarinnar 2015-16: Harry Kane, Tottenham 19 Jamie Vardy, Leicester 19 Romelu Lukaku, Everton 18 Sergio Agüero, Manchester City 16 Riyad Mahrez, Leicester 15 Odion Ighalo, Watford 14 Olivier Giroud, Arsenal 12 Diego Costa, Chelsea 11 Jermain Defoe, Sunderland 11
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira