Dæmdur í gæsluvarðhald: Stal raftækjum, reiðhjóli og hangikjötslæri sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 4. febrúar 2016 17:09 Maðurinn var dæmdur fyrir vopnuð rán og að hafa ógnað fólki með sprautunál. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem grunaður er um fjölmörg brot, meðal annars þjófnað og fíkniefnalagabrot, á árunum 2014 til 2016. Dómurinn telur líkur á að maðurinn haldi brotastarfsemi sinni áfram fái hann að ganga laus.Innbrot, fíkniefnaneysla og þjófnaður Síðasta brot mannsins á að hafa átt sér stað síðastliðinn þriðjudag, 4. febrúar. Þá barst lögreglu tilkynning um mann í annarlegu ástand á Laugavegi. Hann hafði stolið sjónvarpi og við leit á honum fannst flugmiði og sjónvarpsfjarstýring. Búið var að spenna upp og brjóta glugga í íbúð í nágrenninu, og játaði maðurinn að hafa brotist þangað inn og tekið fyrrnefnda muni. Þá er honum jafnframt gefið að sök að hafa stolið ýmsum verkfærum, reiðhjóli, fartölvu, tölvuleikjum, fatnaði og tveimur hangikjötslærum, svo fátt eitt sé nefnt. Hann játar flest brot sín.Hótaði fólki með sprautunál Maðurinn á nokkurn sakaferil að baki, fyrir auðgunarbrot og sérrefsilagabrot. Hann hlaut síðast dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2012 þar sem hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir þrjú vopnuð rán og ránstilraunir. Hann ógnaði starfsfólki verslananna með sprautunál og hótaði að smita það með HIV-veirunni, afhenti það honum ekki peninga. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í fjögurra vikna gæsluvarðhald, til 1. mars, síðasta þriðjudag. Lögreglustjóri taldi yfirgnæfandi líkur á að maðurinn myndi halda áfram brotastarfsemi færi hann frjáls ferða sinna og taldi því brýnt að hann sæti í gæsluvarðhaldi uns málum hans sé lokið hjá lögreglu. Dómurinn féllst á þessi rök lögreglustjórans og var maðurinn því, sem fyrr segir, dæmdur í gæsluvarðhald.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sjá meira