Nánast nóg að komast inn í forkeppnina Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. janúar 2016 09:00 Júlí Heiðar ásamt flytjendum lagsins þeim Þórdísi Birnu og Guðmundi Snorra.
Lagið Spring yfir heiminn eftir Júlí Heiðar Halldórsson komst á dögunum inn í íslensku forkeppni Eurovision. Júlí Heiðar hefur reynt við keppnina tvisvar sinnum áður en ekki haft erindi sem erfiði og var því að vonum ánægður með árangurinn. Textann við lagið samdi Júlí Heiðar í samvinnu við Guðmund Snorra Sigurðarson sem er annar flytjenda lagsins auk Þórdísar Birnu Borgarsdóttur. „Hún er kærastan mín og hann er einn af mínum bestu vinum þannig að ég þurfti ekki að leita langt,“ segir Júlí Heiðar glaður í bragði en hann mun ekki koma að flutningi lagsins sjálfur þrátt fyrir að hafa reynt fyrir sér á söngsviðinu áður. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég kemst inn í keppnina og mig langaði til þess að fá einhvern teknískari en mig sjálfan og betri en ég að syngja til að gera þetta,“ segir hann um ástæður þess að hann muni ekki þenja raddböndin á sviðinu. „Mig langaði líka til þess að hafa yfirsýn yfir hlutina og vinna í laginu í staðinn fyrir að vera að svitna yfir því að flytja þetta.“ Lagið segir hann fjalla um manneskju sem langi til þess að skilja eitthvað eftir sig en vill ekki gefa meira upp um umfjöllunarefni textans að svo stöddu. Eurovision er þó ekki það eina sem á hug Júlís Heiðars þessa dagana þar sem hann leggur einnig stund á nám í leiklist í Listaháskóla Íslands og því deginum ljósara að það verður nóg um að vera hjá honum á næstu mánuðum. „Það verður nóg að gera núna í janúar og febrúar, langir skóladagar og svo æfingar á kvöldin,“ segir hann og bætir við að hann setji það þó ekki fyrir sig að vera upptekinn: „Þá skipuleggur maður sig meira og tæklar dagana betur.“Helgi Sæmundur Guðmundsson pródúseraði lagið.Helgi Sæmundur Guðmundsson, annar meðlimur rapphljómsveitarinnar Úlfur Úlfur, er pródúsent lagsins og einnig fékk Júlí Heiðar, Glenn Schick til þess að mastera lagið en hann hefur meðal annars unnið sér það til frægðar að mastera lög fyrir Justin Bieber og Elton John. Schick er einnig talsverður Íslandsvinur en hann kom hingað til lands á Secret Solstice og hefur meðal annars masterað plötu Bubba Morthens og plötuna Destrier með hljómsveitinni Agent Fresco. Júlí Heiðar segist vera talsverður aðdáandi Eurovision-keppninnar og segir hann rússneska lagið A Million Voices frá því í fyrra í flutningi Polina Gagarina í uppáhaldi auk belgíska lagsins Rhytm Inside í flutningi Loïc Nottet. A Million Voices hafnaði í öðru sæti í aðalkeppninni og Rhythm Inside í fjórða sæti aðalkeppninnar. Hann er þó að eigin sögn ekki upptekinn af því að vinna keppnina, hvorki hér heima né þá stóru sem fram fer þann 14. maí næstkomandi í Svíþjóð. „Ég er nú svona semi-búinn að vinna því ég komst inn, það er bara nóg fyrir mig,“ segir hann himinlifandi að lokum.
Eurovision Justin Bieber á Íslandi Tónlist Mest lesið Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Lífið Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Lífið „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Lífið Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Lífið Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Lífið Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Lífið Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Lífið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið Neyslusaga móður: „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg“ Áskorun Fyndnustu gæludýramyndir ársins Lífið Fleiri fréttir „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira