Lögreglumenn vilja að umboðsmaður kanni stöðuveitingar í lögreglunni Aðalsteinn Kjartansson skrifar 12. janúar 2016 14:02 „Þetta er hlutur sem hefur verið að gerast árum saman í lögreglunni,“ segir formaður landssambandsins. Vísir/Ernir
Landssamband lögreglumanna hefur sent umboðsmanni alþingis bréf og beðið hann um að rannsaka stöðuveitingar innan lögreglunnar. Snorri Magnússon, formaður landssambandsins, segir að fjölmargir lögreglumenn hafi gert athugasemdir vegna stöðuveitinga sem fara fram innan lögreglunnar án auglýsinga.Margir lögreglumenn gert athugasemdir „Það er ekkert sérstakt tilefni. Það hafa verið að berast umkvartanir frá félagsmönnum víða vegna þessa erindis sem er þarna í þessu bréfi. Það er verið að kvarta undan því að það sé verið að, í auknu mæli, að setja menn í stöður og ráða menn til starfa án auglýsinga,“ segir Snorri. „Þetta er hlutur sem hefur verið að gerast árum saman í lögreglunni.“ Snorri segir engin sérstök dæmi nefnd í bréfinu til umboðsmanns.Vísir/VilhelmSnorri segir að fjöldamörg álit séu til hjá umboðsmanni um einstaka mál sem lögreglumenn hafa sjálfir farið með til embættisins. „Umboðsmaður hefur gert við þetta athugasemdir, í þessum einstöku erindum og svo í almennum erindum og skýrslum sem hann hefur sent frá sér líka,“ segir hann. „Okkur þótti einsýnt í ljósi þessum fjölda lögreglumanna sem hefur verið að ræða við okkur um þetta og benda okkur á þessar staðreyndir að fá umboðsmann til að gera á þessu frumkvæðisathugun,“ segir hann. Kannar kannski lögreglustjóraskipunina Engin sérstök dæmi eru nefnd í bréfi lögreglumannanna til umboðsmanns en nokkur slík hafa vakið athygli á síðustu árum. Til dæmis skipun Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur í embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Snorri segir þá skipun ekki vera sérstakt umkvörtunarefni í bréfinu til umboðsmanns „En auðvitað vakti sú skipun á sínum tíma athygli fjölmiðla og var umfjöllunarefni þar þannig það má vera að hann taki það til skoðunar í þessu líka. Ég veit það ekki,“ segir Snorri. Að mati Snorra er þessi vandi ekki bundinn við lögregluna heldur sé þetta æ meira áberandi í ríkisrekstrinum almennt. „Þetta er eitthvað trend sem er að birtast til að færa ríkisgeirann nær hinum almenna vinnumarkaði þar sem staðreyndir er jú einfaldlega sú að það hvílir engin auglýsingaskylda á einhverju fyrirtæki úti í bæ þegar þeir eru að ráða til sín en þessu er bara öðruvísi farið þegar er verið að sýsla með fjármuni hins opinbera,“ segir hann.
Mest lesið Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Fleiri fréttir Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Sjá meira