Gjafir yfir 120 þúsund krónum skattskyldar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 4. febrúar 2016 07:00 Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. vísir/anton
Verðmæti tækifærisgjafa má ekki fara yfir 120 þúsund krónur án þess að þær verði taldar fram til skatts. Þetta segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Fréttablaðið fjallaði í janúar um jólagjafir og jólahlaðborð ríkisstofnana og -fyrirtækja. Af þeim 150 svörum sem blaðinu höfðu þá borist mátti ráða að dýrustu gjafirnar sem ríkisstarfsmenn fengu frá vinnuveitanda sínum fyrir síðustu jól væru að verðmæti tæplega 31 þúsund krónur. Þessar gjafir eru því fjarri því að ná því marki að vera skattskyldar. Skúli Eggert segir að almennt eigi að telja til tekna hvers konar gæði sem mönnum hlotnast og það sem metið verði til peningaverðs. „Þá skiptir það ekki máli í hvaða formi það er eða hvaðan það stafar. Þetta er fatnaður, þetta er húsnæði, fæði og alls konar fríðindi, greiðslur og þess háttar,“ segir hann. Ríkisskattstjóri segir jólagjafir flokkast sem tækifærisgjafir. „Það er auðvitað mjög mismunandi á milli fyrirtækja, stofnana og einstaklinga hvað þeir líta á sem viðunandi gjöf. Það er auðvitað vandrötuð línan þarna, að vera ekki tíkarlegur í gjöfum þannig að það móðgi móttakandann og um leið að hafa það innan skynsamlegra marka,“ segir Skúli Eggert. Meginreglan að sögn Skúla Eggerts er sú að jólagjafir frá fyrirtækjum eru ekki skattskyldar nema það séu peningar. „Ef þetta eru peningar sem eru gefnir þá er það ekki annað en launauppbót. Dæmi um slíkt er ef menn fá einhverjar bónusgreiðslur eða greidda einhverja yfirvinnu sem þeir hafa ekki unnið en er einhvers konar jólagjöf eða eitthvað slíkt. Þá er það skattskylt að fullu,“ segir hann. Skúli Eggert segir að í öllum tilfellum þurfi að vega þetta og meta. „Það þarf að hafa það í huga þegar verið er að gefa einstaklingsbundnar gjafir,“ segir hann og tekur sem dæmi gjöf sem starfsmenn slá saman í eða fyrirtækið borgar handa starfsmanni sem er að láta af störfum. „Það er einsskiptis athöfn, það er tækifærisgjöf. Jafnvel þó að það væri eitthvað sem kostaði jafnvel hundrað þúsund krónur eða eitthvað þess háttar, þá er ekki hægt að líta á það sem skattskylt í þeim skilningi.“ En skyldi vera algengt að að fólk telji fram tækisfærisgjafir? „Nei, ég get alveg slegið því föstu að það er ekki algengt,“ svarar ríkisskattstjóri.
Mest lesið Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Tveir á vinnupalli sem féll Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Sjá meira