Ráðvilltur maður fannst í snjó við Bústaðaveg Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. janúar 2016 12:54 Gatnamót Flugvalla- og Bústaðavegar. Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/rósa
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af manni á tíunda tímanum í morgun sem fannst liggjandi í snjónum við Bústaðaveg. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að maðurinn hafi verið í annarlegu ástandi þegar lögreglumenn stjökuðu við honum. Hann hafi verið illa áttaður og hafi ekki vitað hvar hann var staddur. Þá var hann orðinn kaldur eftir að hafa legið einhverja stund í snjónum. Maðurinn var færður á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu – „meðan ástand hans lagast,“ eins og það er orðað í dagbókarfærslunni. Ekki er nánar tilgreint hvort maðurinn hafi verið ölvaður eða undir áhrifum annarra vímuefna. Lögreglumenn sem staddir voru á Breiðholtsbraut þurftu að hafa hendur í hári ökumanns sem ók einkennilega á sjötta tímanum í morgun. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglunnar, jók hraðann og ók yfir gatnamót á rauðu. Þegar hann stöðvaði loks bifreiðina hljóp hann af vettvangi. Lögreglumenn náðu þó að hlaupa hann uppi og höfðu hendur í hári hans skömmu síðar. Ökumaðurinn á að hafa kastað frá sér yfirhöfn og í dagbókarfærslu lögreglunnar segir að ætluð fíkniefni hafi fundist í vasa yfirhafnarinnar. Maðurinn er sagður hafa verið án ökuréttinda og að hann hafi í raun aldrei öðlast slík réttindi. Bifreið hans var flutt af vettvangi með dráttarbifreið.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarrétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk Sjá meira