Mestar áhyggjur eru af landverkafólki Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 6. janúar 2016 20:30
Verðmæti útfluttra sjávarafurða jókst um tæp 9 prósent, þrátt fyrir viðskiptabann Rússa síðari hluta ársins. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Það kemur Valmundi Valmundssyni formanni Sjómannasambandsins á óvart. „Við verðum líka að taka það til greina að í fyrra var mjög góð loðnuvertíð. Þá var ekki viðskiptabann við Rússlandi. Það vegur upp á móti. Hún var glettilega góð og mikil verðmæti. Það kemur samt talsvert á óvart að það sé svona mikil hækkun á milli ára þrátt fyrir viðskiptabann.“ Valmundur segist mestar áhyggjur hafa af landverkafólki í komandi loðnuvertíð. „Nú er að koma loðnuvertíð. Ef að hún verður góð, hvað á að gera við afurðirnar? Á að bræða þetta allt? Sjómennirnir fá alltaf hlut af sínu, það er verra með landverkafólk. Ég hef meiri áhyggjur af því en sjómönnum,“ segir hann. Hann segir að heilt yfir þá hafi sjómenn skilning á aðstæðum og hann geti ekki skipt sér af pólitík. Sjómannafélag Íslands tekur dýpra í árinni og gagnrýni á Gunnar Braga Sveinsson hefur verið hörð. Í ályktun félagsfundar Sjómannafélags Íslands sem haldinn var 28.desember síðastliðinn segir að hann eigi að að taka pokann sinn og hypja sig breyti hann ekki afstöðu sinni til þátttöku Íslands í viðskiptaþvingunum gegn Rússum. Jónas Garðarsson formaður félagsins segist standa við harðskeytta gagnrýni á utanríkisráðherra. „Við stöndum við hana, eins og þetta birtist okkur þá er þetta eins manns sýning. Við hefðum talið rétt að Alþingi Íslands fjallaði um svo róttækar aðgerðir eins og hér er um að ræða.“ Jónas segir spursmál hvort útgerðarmenn sjái sér hag í að sækja aflann. „Launakjör okkar manna á uppsjávarskipum er í uppnámi þar sem meirihlutinn tengist landvinnslu. Það er spurning hvort að útgerðarmenn sjái sér hag í að sækja aflann.“
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira