Eyjamenn ætla að minnast markvarðarins Abel Dhaira í Pepsi-deildinni í sumar en Úgandamaðurinn lést í lok mars eftir baráttu við krabbamein, aðeins 28 ára gamall.
ÍBV-liðið mun leika með minnismerki um Abel Dhaira á búningum sínum í sumar en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
ÍBV fékk sérstakt leyfi frá KSÍ til að setja merkið, Abel Dhaira #1, á búninginn fyrir Pepsí-deildina 2016.
ÍBV þakkar KSÍ fyrir skilning og stuðning á aðstæðum í fyrrnefndri fréttatilkynningu.
ÍBV spilar fyrsta leikinn sinn í Pepsi-deildinni á Hásteinsvelli í dag þegar Skagamenn koma í heimsókn. Fyrir leikinn í dag verður stund til minningar um Abel sem og fyrrverandi stjórnarmann knattspyrnuráðs ÍBV, Eggert Garðarsson, sem lést snemma á árinu.
Abel greindist með krabbamein í kviðarholi seint á síðasta ári og var skorinn upp vegna meinsins í heimalandi sínu á aðfangadag í fyrra. Hann kom til Íslands í byrjun árs og hóf þá læknismeðferð. Meinið hafði hins vegar dreift sér víða um líkama Abels svo ekki var við ráðið.
Eyjamenn hafa stutt afar vel við Abel og fjölskyldu hans og settu meðal annars af stað fjársöfnun fyrir Abel sem gekk vonum framar en fjölmörg félög gáfu m.a. sektarsjóði sína. Þann 6. mars fór líka fram styrktarleikur fyrir Abel þar sem úrvalslið Pepsi-deildarinnar mætti nú- og fyrrverandi leikmönnum ÍBV.
Eyjamenn eiga mikinn heiður skilinn fyrir hvernig þeir hafa tekið á þessu erfiða máli sem hafði mikil áhrif á alla sem fylgst hafa með íslenskri knattspyrnu síðustu ár.
Minnismerki um Abel Dhaira á búningum ÍBV í allt sumar

Tengdar fréttir

Heimir var við útför Abel í Úganda
Knattspyrnumarkvörðurinn Abel Dhaira var jarðsettur í Úganda í dag.

„Skemmtilegur viðburður af döpru tilefni“
Páll Magnússon segir að krabbamein hafi á örfáum vikum dreift sér víða um líkama Abel Dhaira.

Allt breyttist þegar mamma Abel kom til landsins
Abel Dhaira gefur hvergi eftir í baráttunni við krabbameinið og ætlar að taka annað tímabil með ÍBV.

Abel Dhaira látinn
Stuttri baráttu við krabbamein lauk í dag.

Minningarathöfn um Abel í Vestmannaeyjum
Markvarðarins minnst í Vestmannaeyjum á sunnudag.

Tryggvi þurfti stiga til að komast í leikinn | Myndir frá styrktarleik Abel Dhaira
Helstu stjörnur Pepsi-deildarinnar mæta nú- og fyrrverandi leikmönnum ÍBV í styrktarleik í Kórnum fyrir markvörðinn Abel Dhaira sem glímir við krabbamein.