Stjórn Orkuveitunnar hafnaði tilboði í Hellisheiðarvirkjun Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. desember 2015 07:00 Áhugasamur kaupandi gerði tilboð í Hellisheiðarvirkjun. vísir/vilhelm
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hafnaði kauptilboði í Hellisheiðarvirkjun. Kauptilboð í Hellisheiðarvirkjun var tekið fyrir og rætt í stjórn Orkuveitunnar fyrir mánuði síðan, 23. nóvember síðastliðinn. Stjórn samþykkir samhljóð að þakka fram komið tilboð en felur stjórnarformanni að upplýsa tilboðsgjafa um að engin ákvörðun hefur verið tekin um sölu virkjana samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur,“ hljómar bókun stjórnarinnar í málinu.Haraldur Flosi TryggvasonHaraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar Orkuveitunnar, segist ekkert geta upplýst um hver hafi sett kauptilboðið fram eða hvað hafi í því falist. „Þetta var mjög athyglisvert,“ segir Haraldur Flosi. „En þetta var allt saman bundið miklum trúnaði.“ Að sögn stjórnarformannsins væri ákvörðun um sölu af þessu tagi tekin af eigendum Orkuveitunnar. „Það eru engar vangaveltur í gangi um slíka sölu og stjórnin hefur ekkert umboð til þess að gera eitt né neitt í þá veru. Það væri þá frekar að fara til eigendanna og ræða við þá,“ segir Haraldur Flosi. Langstærsti eigandi Orkuveitu Reykjavíkur er Reykjavíkurborg. Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri hjá borginni, kveðst ekki vita til þess að borginni hafi borist erindi um kaup á Hellisheiðarvirkjun.
Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Sjá meira