Óháðir aðilar oft betri en ríki Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. júní 2015 07:00 SÁÁ á aðild að Almannaheillum og er dæmi um samtök sem hafa skipt sköpum fyrir velferðar- og heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Stephen Bubb segir að frjáls félagasamtök styrki samfélagið og lýðræðið. fréttablaðið/heiða
Frjáls félagasamtök skipta miklu máli í starfi að velferðarmálum og heilbrigðismálum, segir Bretinn Sir Stephen Bubb. Hann er framkvæmdastjóri ACEVO, samtaka stjórnenda sjálfboðasamtaka í Bretlandi, og verður aðalræðumaður á málþingi sem Almannaheill standa fyrir á Fundi fólksins á morgun. Bubb segir að stjórnvöld gætu veitt almannaþjónustu mun betur með því að nýta frjáls félagasamtök og góðgerðarfélög á skilvirkari hátt. „Þegar þú horfir á heilbrigðisgeirann í Bretlandi þá hafa frjáls félagasamtök alltaf spilað stóra rullu. Og stundum eru frjáls félagasamtök betri í því að aðstoða fólk með geðheilbrigðisvanda, í fíkn, heldur en ríkið getur gert. Þau eru oft betur miðuð að skjólstæðingnum en ríkið,“ segir Bubb. Þá bendir Bubb á að frjáls félagasamtök skipti verulegu máli fyrir efnahagslíf í hverju ríki. Hann bendir á að 1,5 milljónir manna séu á launum hjá frjálsum félagasamtökum í Bretlandi og um 6 milljónir manna starfa reglulega í sjálfboðaliðsvinnu fyrir frjáls félagasamtök.Stephen Bubb Bubb segir að munurinn á sterkum samfélögum og veikum samfélögum sé fjöldi frjálsra félagasamtaka í samfélaginu. Það sé grundvallaratriði að stjórnvöld hafi mótaða stefnu sem styður og verndar frjáls félagasamtök og skaðar þau ekki. „Að auki er mikilvægt að stjórnvöld virði sjálfstæði þessara samtaka. Að þau styðji en séu ekki að reyna að stýra eða segja fyrir um hvað á að gera og hvað ekki,“ segir Bubb. Bubb segir að stjórnvöld verði að gefa þessum félagasamtökum svigrúm til þess að tala frjálslega. „Þannig að ef stjórnvöld eru að gera eitthvað sem skaðar samfélagið þá er það hlutverk þessara félagasamtaka að koma í veg fyrir það,“ segir Bubb. Það verði að hafa á hreinu að það sé hlutverk þessara frjálsu félagasamtaka að benda á það sem miður fer. „Við erum ekki hluti ríkisins og stundum þurfum við að segja ríkisvaldinu ef það er að gera eitthvað rangt,“ segir hann. Bubb bendir á að í hluta Austur-Evrópu og í Rússlandi hafi frjáls félagasamtök og góðgerðarsamtök hreinlega verið barin niður. „Þannig að þú þarft að geta boðið stjórnvöldum birginn og góð stjórnvöld skilja það en styðja samt við bakið á þessum sömu félagasamtökum,“ segir Bubb.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Kom ekki á teppið Innlent Pallborðið: Síðasta einvígið Innlent Fleiri fréttir Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Pallborðið: Síðasta einvígið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ Sjá meira