Slitabúin geta ekki sett nein skilyrði Heimir Már Pétursson skrifar 11. júní 2015 12:24 Forsætisráðherra segir slitabú gömlu bankanna ekki geta sett nein skilyrði fyrir nauðasamningum. Þau verði þvert á móti að uppfylla öll skilyrði stjórnvalda. vísir/vilhelm
Forsætisráðherra segir slitabú gömlu bankanna ekki geta sett nein skiyrði fyrir því að ganga til nauðasamnnga, til að mynda að nýju bankarnir sem þau eiga hlut í verði ekki seldir til innlendra aðila. Ef slitabúin gangi ekki að öllum skilyrðum stjórnvalda fari þau skattlagningarleiðina. Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar spurði Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun, hvort slitabú Glitnis hefði sett þau skilyrði fyrir því að ganga til nauðasamninga, að Íslandsbanki yrði ekki seldur innlendum aðilum næstu fimm árin. En greint er frá þessu í Fréttablaðinu í dag. Forsætisráðherra sagði slitabúin ekki geta sett fram nein skilyrði sjálf kysu þau að fara að stöðugleikaskilyrðum stjórnvalda í væntanlegum haftalögum. „Þau geta viðrað hugmyndir. En það breytir í engu því að ef þau ætla að klára nauðasamninga og ljúka sínum málum hér með þeim hætti, þá verða þau að uppfylla öll stöðugleikaskilyrði stjórnvalda og þau eru óumsemjanleg,“ segir Sigmundur Davíð. Ef slitabúin framfylgi ekki öllum skilyrðunum stjórnvalda fari búin skattlagningarleiðina. Þá séu skilyrði að hálfu stjórnvalda komi til þess að slitabúin selji hlut sinn í nýju bönkunum. „Þegar þau verða seld, sama hvert þau verða seld, verði þau seld á meiri pening en þau eru bókfærð á núna mun ríkið fá á milli 50 til 75 prósent af þeim hagnaði. Af þeirri virðisaukningu,“ segir forsætisráðherra. Katrín minnti á að Frosti Sigurjónsson þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar hefði opinberlega lýst því yfir að hann sé andvígur því að hlutur kröfuhafa í nýju bönkunum verði seldur erlendum aðilum. „Menn hafa líka haldið því fram að verði bankar hér seldir á lágu verði til erlendra aðila séu menn ekki að leysa vandann heldur eingöngu fresta honum og færa hann til,“ sagði Katrín. Forsætisráðherra sagði að um áratugaskeið hefði verið leitast við að fá erlenda aðila inn á íslenskan bankamarkað. „Og það hefði ýmsa kosti í för með sér ef sá aðili ætlaði sér að standa hér í bankarekstri í samkeppni við aðra banka. Hins vegar er ég sammála háttvirtum þingmanni Frosta Sigurjónssyni um það, að það er ekki sama um hvaða aðila væri að ræða. Það væri t.d. ekki gott að íslensku bankarnir kæmust í eigu einhverra fjárfestingarsjóða sem ætluðu sér ekkert að standa í rekstri banka heldur eingöngu að reyna að ná sem mestu héðan út á sem skemmstum tíma. Það væri óásættanlegt fyrirkomulag,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Sjá meira